Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Side 23

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Side 23
mannréttindavernd í samræmi við sáttmálann hafa nýlega verið færð í búning meginreglu þeirrar sem er kunnust úr rétti Evrópusambandsins, og umræðum sem tengjast Evrópubandalaginu, þ.e. meginreglunni um að ákvarðanir séu teknar sem næst þeim sem þær varða, (e. the principle of subsidiarity).32 í þessari meginreglu, sem hefur áhrif á réttarframkvæmd stofnana Evrópuráðs- ins, felast því bæði formleg hlið, þ.e. skilyrðið um að öll úrræði séu tæmd í réttarkerfi aðildarríkis, áður en stofnanir Evrópuráðsins geta tekið afstöðu til málsins, og efnisleg, þ.e. að niðurstaðan er ekki endurskoðuð, með tilliti til réttarheimilda og aðstæðna í aðildarríki, en afstaða tekin til þess, hvort niður- staðan samrýmist samningsskuldbindingum ríkisins. Stofnanir Evrópuráðsins eru í meginatriðum valdbærar til að meta hvort svo er. 3.2.2 Meginreglan um mat aðildarríkja á nauðsyn aðgerða sem takmarka mannréttindi (margin of appreciation) Framangreind meginregla, um að ákvörðun sé að jafnaði rétt að taka sem næst þeim sem hún varðar, og sjónarmið í ýmsum aðildarríkjum um að yfir- þjóðlegar stofnanir megi ekki ganga of langt inn á svið stofnana fullvalda ríkja í mati þeirra á aðstæðum og aðgerðum innan marka ríkisins, hafa leitt af sér flóknar aðferðir í réttarframkvæmd stofnana Evrópuráðsins um mörk eðlilegs endurskoðunarvalds mannréttindadómstólsins gagnvart svigrúmi ríkisins til að meta nauðsyn aðgerða (e. doctrine of the margin of appreci- ation). Þetta sjónarmið verður varla talið til lögskýringarsjónarmiða, en verður einna helst borið saman við sjónarmið í landsrétti um valdmörk dómstóla til að endurskoða (frjálst) mat stjómvalda, eða að leggja eigið mat til grundvallar við úrlausn um það hvort lög samrýmast ákvæðum stjórnarskrár, enda mun kenningin um svigrúm aðildarríkis til mats vera byggð á slíkum sjónarmiðum úr landsrétti aðildarríkjanna. Mikið hefur verið ritað um þetta svigrúm aðildar- ríkjanna til mats, en fræðimönnum hefur reynst erfitt að henda reiður á því hvað í aðferðinni og kenningunni um hana felst; sérstaklega að reyna að gera grein fyrir því með almennum hætti hvað kenningin felur í sér. Einn dómari dómstólsins hefur í ritgerð um efnið bent á að tilraunir til að orða kjarna þess- arar kenningar með almennum hætti hljóti að mistakast, eða vera marklaus klifun, en ef kenningin verði skilgreind verði hún eingöngu skilgreind með neikvæðum hætti - þ.e. að út frá þeim valdmörkum sem mannréttindadóm- stóllinn ákvarði sér við mat á réttarframkvæmd aðildarríkjanna sé hægt að segja til um það svigrúm sem aðildarríkjum er látið eftir.33 32 Sjá Herbert Petzold: „The Convention and the Principle of Subsidiarity“. The European System for the Protection of Human Rights (R. St. J. Macdonald, F. Matscher og H. Petzold ritstj.), 1993, bls. 41-62. 33 R. St. J. Macdonald: „The Margin of Appreciation“ The European System for the Protect- ion of Huraan Rights (R. St. J. Macdonald, F. Matscher og H. Petzold ritstj.) 1993, bls. 85. 171

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.