Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Síða 46

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Síða 46
sjálfir að sjá til þess að þessum reglum sé framfylgt í eigin löndum, ekki aðeins eins og þeir sjálfir telja eðlilegt að þær séu skýrðar heldur í samræmi við kröfur alþjóðlegra eftirlitsaðila. 2. ÍSLAND OG ALÞJÓÐLEGAR KRÖFUR A undanfömum árum hefur umræða um mannréttindi og vemd mannréttinda verið vaxandi á Islandi. I þessari umræðu hefur m.a. verið fjallað um það hvort og með hvaða hætti Islendingar framfylgja þeim skyldum sem þeir hafa skuldbundið sig til að gera þegar fullgiltir hafa verið alþjóðlegir samningar um vemd mannréttinda. Aftur á móti man ég ekki til þess að fjallað hafi verið um hvaða þýðingu það hefur fyrir Island að framfylgja út í æsar alþjóðlegum kröfum um vernd mannréttinda. Þegar fullgilding Islands á Evrópusáttmála um verndun mannréttinda og mannfrelsis var til umræðu á Alþingi árið 1951 sagði þáverandi dóms- málaráðherra: „Um þau réttindi sem hér eru talin, er það í stuttu máli að segja, að í öllu því, sem nokkru máli skiptir, þá eru þau réttindi nú þegar beinlínis veitt borgurunum berum orðum í íslenzkri löggjöf og að nokkru leyti í sjálfri stjómarskránni, eða þá að það eru slík grundvallarréttindi, að þau eru talin felast í meginreglum íslenzkra laga, jafnvel þó að ekki sé berum orðum fram tekið. Þess vegna má segja, að 1. kafli þessa samnings sé hér á landi engin nýjung, því að þar eru talin þau réttindi, sem borgararnir þegar hafa notið og talin eru sjálfsagður þáttur í verndun íslenzkra borgara gegn ofurvaldi ríkis- valdsins eða ásælni af annarra hálfu'*. Eg held að á meðal íslenskra stjómmálamanna sé nokkuð almennur vilji til þess að framfylgja alþjóðlegum grundvallan-eglum um réttindi borgaranna. Þeir em a.m.k. tilbúnir til að gagnrýna önnur ríki sem gera það ekki. Aftur á móti em íslenskir stjómmálamenn viðkvæmir fyrir kröfum um breytingar á lögum sem rót eiga að rekja til alþjóðlegra skuldbindinga og kemur þar tvennt til að mínu mati. I fyrsta lagi skerðir það sjálfsákvörðunarrétt Alþingis þegar lögum er breytt vegna kröfu erlendis frá og ég held að þeir telji almennt að vemd mannréttinda sé í góðu lagi á Islandi, það sé bara í útlöndum sem þurfi að bæta þau. í öðru lagi kostar það fjármuni að framfylgja alþjóðlegum kröfum varðandi þá sem sæta frjálsræðissviptingu og jafnframt kostar það aukna skriffinnsku. Hér á eftir ætla ég að gera grein fyrir vandamálum sem til staðar eru í litlu samfélagi eins og því íslenska við það að framfylgja alþjóðlegum kröfum um þá sem sæta frjálsræðissviptingu. A Islandi hefur stjórnsýsla og kannski þjóðfélagið allt komist af með þeim hætti að halda skrifræði í lágmarki. Þótt menn tali um skrifræði hér á landi er það a.m.k. miklu minna en á hinum Norðurlöndunum. Það felur m.a. í sér að skrifaðar reglur eru færri, í þeim koma yfirleitt fram almennar grundvallar- reglur, en síðan eiga menn bara að leysa þau vandamál sem koma upp og finna út úr því hvað samrýmist best viðurkenndum grundvallarreglum. Sumum tekst það en öðrum ekki. 194

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.