Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Síða 47

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Síða 47
Þessi háttur er ekki í samræmi við alþjóðlegar siðakröfur varðandi þá sem sæta frjálsræðissviptingu. Samkvæmt þeim reglum skal allt skráð. Enda fer skrifræði ört vaxandi hér á landi. Nýjar reglur eru settar, oft á tíðum nákvæmar - sumir segja smásmugulegar - en allt er þetta gert til þess að auka vemd og rétt borgaranna og til þess að uppfylla alþjóðlegar siðakröfur. Hér að framan voru nefndar þrjár grundvallarreglur Evrópunefndar um varn- ir gegn pyndingum, sem nefndin telur að eigi að gilda fyrir þá sem lögregla hefur handtekið, þ.e.a.s. regluna um að handtekinn maður megi láta vita af sér, hann eigi rétt á aðstoð lögmanns og að fá lækni að eigin vali. Þessara réttinda á handtekinn maður að njóta þegar við handtöku. Tvær þær fyrst- nefndu eru þegar í lögum hér á landi, þótt það geti leitt til vandkvæða í fram- kvæmd að framfylgja rétti til lögmannsaðstoðar á sumum stöðum á landinu. Þau vandamál sem íslensk stjómvöld eiga við að glíma eru með hvaða hætti er unnt að framfylgja sömu reglum um allt land. Það sem við er átt er það að á allmörgum stöðum utan Reykjavíkur era starf- andi einn til þrír lögregluþjónar. Víða er enginn lögmaður starfandi og stundum tugir og allt að 200 kilómetrar í aðsetursstað næsta lögmanns. Á vetrum er stund- um ófært til þessara staða vegna veðurs og snjóa og getur verið nokkra daga í röð. Á þessum stöðum er oft einn læknir og í besta falli tveir. Um kvöld og helgar er líklegt að annar þeirra sé á bakvakt - hinn á að eiga frí. Ef handtaka þarf mann á þessum stöðum er það oftast um kvöld eða helgar og í flestum tilvikum fyrir smávægileg afbrot eða ölæðisgerning. í nokkrum tilvikum gista þessir menn fangageymslur en yfirleitt ekki lengur en í 6-8 klukkustundir. Það getur virkað eins og hálfgerður brandari að í tilvikum sem þessum sé byrjað á því að lesa það yfir kófdrukknum manni, sem á að fara að setja í fangaklefa, að hann eigi rétt á lögmanni og ég verð að viðurkenna, að ég skil þann lögreglumann vel sem í hita leiksins “gleymir” að nefna réttinn um að- gang að lögmanni í tilvikum sem þessum. Það gilda að sumu leyti önnur sjónarmið varðandi aðgang að lækni. Hér á landi gildir sú meginregla í framkvæmd að það er lögregla sem metur hvort þörf sé á að kalla til lækni vegna handtekins manns. Ef skilyrðislaust á að kalla lækni til handtekins manns, að beiðni hans, á þessum litlu stöðum vaknar sú siðferðislega spurnig hvort það séu brýnustu skyldur læknis á bakvakt að sinna fullum íslendingi sem lent hefur í höndum lögreglu þegar tekið er tillit til þess að hann hefur læknisskyldur gagnvart heilu byggðarlagi. Ég ætla einn- ig að nefna þau vandamál sem geta skapast ef hinn handtekni óskar frekar eftir þeim lækni sem á að eiga frí eða lækni úr öðru byggðarlagi, sem er óframkvæmanlegt í reynd, og ég tel það ósiðlegt gagnvart skyldum viðkom- andi læknis að sinna slíku útkalli. Auk þess vaknar sú spurning ef lögfesta á það að handtekinn maður skuli eiga rétt á skoðun læknis að eigin vali þegar eftir handtöku, hvort í því felist þá ekki jafnframt að skylda beri lækna til að sinna slíku útkalli og hvort slík löggjöf myndi samrýmast siðaskyldum lækna. 195

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.