Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 55

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 55
það efni, sem hér er til meðferðar, þ.e. sönnunarfærslu í málum vegna kyn- ferðisbrota gagnvart bömum. í stuttu máli má segja, að mannréttinda- dómstóllinn hafi ekki viljað fallast á, að mál af þessu tagi réttlæti vegna eðlis síns frávik frá hinum almennu grundvallarreglum, sem settar eru til öryggis ákærðum. Um fyrra atriðið, smábrot, má vitna í dóm frá 19. des- ember 1990 í málinu Delta gegn Frakklandi. Um fíkniefnamál skal bent á málin Kostovski gegn Hollandi (20. nóvember 1989), Windisch gegn Austur- ríki (27. september 1990), Liidi pegn Sviss (15. júní 1992) og Saidi gegn Frakklandi (20. september 1993). I síðastgreinda dómnum segir m.a. (44. gr.): Þó var það svo, að kærandinn gat hvorki á rannsóknarstigi né við dóms- meðferðina spurt vitni, sem þýðingu höfðu, eða látið spyrja þau. Ekki var um neitt andmót (confrontation) að ræða og því naut hann með vissum hætti ekki réttlátrar málsmeðferðar. Dómstóllinn gerir sér vel ljóst, að ekki verður á móti því mælt, að baráttan gegn fíkniefnaverslun er erfiðleikum bundin, sérstaklega að því er varðar það að afla og setja fram sönnunargögn, og að ffkniefnavandinn er þjóðfélagsböl. Tillit til þessa getur ekki réttlætt í þessum mæli að skertur sé réttur til að bera fram vamir, sem veittur er hverjum þeim, „sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi“. í stuttu máli: Brotið hefur verið gegn 6. gr. 1. mgr. og 3. mgr. d. Mannréttindadómstóllinn hefur tekið afstöðu til ýmissa einstakra atriða, sem hér geta skipt máli. Þannig var sagt í máli Barbera o.fl. gegn Spáni (dómur 6. desember 1988), að ýmsir ágallar, sem hver um sig hefði ekki talist brot, geti gert það allir saman. í nokkrum málum frá Svíþjóð hefur verið fjallað um sönnunaraðstöðu á áfrýjunarstigi. í Ekbatani málinu (dómur 26. maí 1988) var talið, að hofrétt- urinn hefði þurft að taka afstöðu til atriða, sem ekki var unnt að meta nema eftir milliliðalausa sönnunarfærslu. Ákærði átti því rétt til munnlegrar máls- meðferðar á áfrýjunarstigi eftir 6. gr. og um brot á 1. mgr. var að ræða. í máli Jan-Áke Andersson (dómur frá 29. október 1991) varð niðurstaðan önnur, þar sem ekki voru í málinu ágreiningsatriði varðandi atvik eða lög, sem ekki mátti skera úr á grundvelli hinna skriflegu dómsgerða. Þá var tekið fram, að um smámál væri að tefla. í máli Schuler-Zgraggen gegn Sviss (dómur 24. júní 1993) sagði, að máls- aðili geti samþykkt að ekki verði munnlegur málflutningur, en það samþykki þurfi að vera glöggt og í samræmi við almenna hagsmuni. Heimilt er að tak- marka aðgang að málsskjölum á grundvelli heildarmats sbr. dómana í málum Edwards gegn Bretlandi frá 16. desember 1992 og Kremzov gegn Austurríki frá 21. september 1993. í dómi sínum í máli Imbrioscia gegn Sviss frá 24. nóvember 1993 fjallaði mannréttindadómstóllinn um skyldu til að virða kröfur 6. gr. við lögreglu- rannsókn. Sagt var (í 36. gr. dómsins) að aðaltilgangur 6. greinar væri að 203

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.