Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Qupperneq 63

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Qupperneq 63
Þessu næst var gengið til stjómarkosninga og þá fyrst til kosningar formanns félagsins til eins árs, en fyrir lá tillaga um Ragnar Aðalsteinsson hrl. sem formann. Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl. stakk upp á Eiríki Tómassyni hrl., sem stjómarformanni næsta árið og fór hann fram á að atkvæðagreiðsla yrði skrifleg. Ekki komu fleiri framboð og var ákveðið að skrifleg atkvæðagreiðsla færi fram. Urslit kosninganna urðu þau að alls greiddu atkvæði 261. Af þeim fékk Ragnar Aðalsteinsson 134 atkvæði og Eiríkur Tómasson 119 atkvæði. Auðir seðlar voru 8. Eftir að úrslit lágu fyrir tók Ragnar Aðalsteinsson til máls og færði hann fundinum þakkir fyrir hönd stjórnar L.M.F.I. fyrir þann stuðning við verk stjórnarinnar, sem hann taldi felast í úrslitunum. Sagði hann að enginn vafi léki á því, að þessi niðurstaða væri til þess fallin að hvetja stjórnarmenn og alla aðra trúnaðarmenn félagsins til enn betri verka og enn betra samráðs við félagsmenn um viðfangsefni félagsins á hverjum tíma. Sagði hann ennfremur að stjómin legði áherslu á að efla að nýju þá samstöðu, sem verið hefði í félaginu að undanfömu. Vonaðist hann til að um heilt gréri með félagsmönn- um þrátt fyrir kosningaátök undanfarinna daga og vikna. Þá tók til máls Eiríkur Tómasson, hrl. og óskaði Ragnari Aðalsteinssyni til hamingju með sigurinn. Kvað hann ástæðuna fyrir því að hann hefði gefíð kost á sér til formanns þá, að hann hefði talið að formaður félagsins nyti ekki stuðnings og trausts félagsmanna. Annað hefði hins vegar komið á daginn. Sagði hann ennfremur að margir félagsmenn hefðu tekið þátt í kosningabarátt- unni og skoraði hann á alla að fylkja sér saman að baki nýkjömum formanni. Á dagskrá aðalfundarins var meðal annars tillaga um fulla aðild L.M.F.Í. að CCBE (Conseil des Barreaux de la Communauté Européenne, sem þýtt hefur verið sem Ráð lögmannafélaga í Evrópubandalaginu). Formaður félags- ins fylgdi tillögunni úr hlaði og sagði að síðast þegar málið hefði verið tekið fyrir á framhaldsaðalfundi félagsins í fyrra hefði verið samþykkt að sækja um áheymaraðild að CCBE og sjá síðan til hver útkoman yrði. Eftir það yrði tekin afstaða til þess, hvort félagið sækti um fulla aðild að CCBE eða hvort hætt yrði við þátttöku í samtökunum. Formaðurinn gerði síðan grein fyrir þeim kostnaði, sem fælist í aðildinni, aðallega árgjaldi til CCBE, en árgjaldið væri lægra en t.d. það sem Luxemburg greiddi. Þá hefði félagið fullan at- kvæðisrétt innan CCBE. Næstur tók til máls Jakob R. Möller hdl. Kvaðst hann enn vera á báðum áttum varðandi aðild að CCBE. Ljóst væri að stjómin hefði náð miklum árangri með árgjald til samtakanna og atkvæðisrétt. Á hinn bóginn taldi hann málamyndaþátttöku í starfi samtakanna ekki nægja og einnig kostaði það stórfé að vera aðili að samtökunum. Lagði hann til að atkvæðagreiðslu um aðild L.M.F.Í. að CCBE yrði frestað til framhaldsaðalfundar og að fyrir þann fund yrði þá jafnframt lögð fram nákvæm kostnaðaráætlun vegna aðildarinnar. Sfðar á fundinum dró hann tillögu sína til baka. 211
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.