Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 67

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 67
væri rétt að fjalla um það. Þá gátu þrír hæstaréttardómarar, sem sammála voru, ákveðið að dómur héraðsdóms skyldi gilda án þess að sérstakan rök- stuðning þyrfti fyrir því áliti. Þessa meðferð á nú að flytja til lagmannsréttar. Jafnframt því eiga öll opinber mál að byrja hjá héraðsdómstólunum, en áður byrjuðu alvarlegustu sakamálin hjá lagmannsréttunum. Þau mál geta eftirleiðis gengið beint frá héraðsdómstólunum til fullnaðarmeðferðar fyrir lagmannsrétti án þess að hljóta bráðabirgðameðferð þá, sem áður fór fram hjá Kærunefnd Hæstaréttar, sem nú hefur verið flutt til lagmannsréttar. Opinberum málum verður aðeins skotið til Hæstaréttar með leyfí réttarins. Hæstiréttur verður þannig eftirleiðis alltaf þriðja dómstig í opinberum málum. Þessar breytingar eiga að létta vinnuálagi af Hæstarétti Noregs, en jafnframt á að fjölga dóm- urum við lagmannsréttina. Héraðsdómstóll á eftirleiðis að vera skipaður einum löglærðum dómara og tveimur leikmönnum við meðferð opinberra mála. Mál þar sem brot er játað verður þó dæmt af einum löglærðum dómara. Finnsku breytingamar eru aðallega fólgnar í því að koma á einingu milli saksóknaraembætta og hafa ekki mikla þýðingu fyrir okkur. Síðasta daginn voru svo umræður um hverja skuli skipa dómara, bakgrunn þeirra, menntun og starfsreynslu. Stefán Már Stefánsson tók þátt í framsögu um þetta efni. Fram kom við umræðurnar að nefnd undir forsæti forseta Hæstaréttar Finnlands mun einhvern næstu daga skila áliti um þetta efni og nefnd undir forsæti forseta Hæstaréttar Danmerkur er að störfum um sama efni. í Svíþjóð og Finnlandi ganga menn í þjónustu dómstólanna ungir og er þeim mörkuð nokkuð ákveðin braut í dómstólakerfinu, sem á að hafa aflað þeim reynslu, svo að þeir verði hæfir dómarar þegar að því kemur að þeir fái fast dómaraembætti. Kerfíð hefur sína kosti og galla. Kostirnir eru að dómaraefnin fá yfírgripsmikla reynslu innan dómstólanna en gallar kerfisins birtast í fremur lokuðu kerfi. Menn verða nokkuð sjálfkrafa dómarar, erfitt reynist hins vegar að skipta þeim út vilji þeir það ekki og erfitt reynist að fá menn inn sem hafa reynslu af öðrum sviðum sem geta gagnast dómstólum. Svíar hafa gert margar skýrslur um þetta efni og Per Henrik Lindblom prófessor, sem talaði fyrir þeirra hönd, lagði áherslu á að hér þyrfti að gæta margra atriða. Skilgreina þyrfti réttarríkið sjálft, að hverju væri stefnt, en sérstaka áherslu lagði hann á sjálfstæði dómaranna og hvemig það yrði best tryggt. í Noregi vill verða erfitt að fá hæfa dómara vegna samkeppninnar um góða lögfræðinga við lögmannsskrifstofurnar og stór einkafyrirtæki sem bjóða há laun hæfu fólki. Flestir sem verða dómarar hafa verið dómarafulltrúar í tvö ár, en hafa síðan ráðist til lögreglustjóraembætta og til ráðuneyta. Nokkuð hefur borið á þeirri gagnrýni í Noregi að dómarar komi úr ráðuneytum og því megi efast um að þeir séu óháðir stjórnvöldum. í Danmörku hafa flestir dómarar verið annað hvort dómarafulltrúar til að byrja með eða fulltrúar í dómsmálaráðuneytinu með starfsskyldur einnig hjá dómstólum og ákæruvaldi. Það hefur verið gagnrýnt í Danmörku að flestir 215

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.