Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 69

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1994, Page 69
ÚTKOMA LÖGFRÆÐINGATALS Lögfræðingatal það sem út kom í október 1993 er hið sjötta í röðinni. Aðdragandi þess var sá að stjóm Lögfræðingafélags íslands fól árið 1989 þeim Benedikt Blöndal hæstaréttardómara, Dögg Pálsdóttur skrifstofustjóra, Garðari Gíslasyni hæstaréttardómara og Skúla Guðmundssyni skrifstofustjóra að undirbúa útgáfu nýs lögfræðingatals. Þrjú hin síðasttöldu tóku formlega sæti í ritnefnd árið 1991, en þá var Benedikt Blöndal látinn. Garðar Gíslason var formaður nefndarinnar. Gunnlaugur Haraldsson þjóðhátta- og fornleifafræðingur var ráðinn ritstjóri verksins. Hin nýja útgáfa Lögfræðingatals er í fjómm bindum og era þrjú þeirra þegar komin út, en hið fjórða kemur væntanlega út síðari hluta árs 1995. Það mun meðal annars hafa að geyma nafnaskrá, tilvísanaskrá, æviágrip fjölmargra útlendra lögfræðinga af íslenskum ættum svo og æviskrár lög- fræðinga, sem útskrifast hafa eftir útkomu fyrstu þriggja bindanna. Hinn 30. október 1993 efndi stjórn Lögfræðingafélags íslands ásamt ritnefnd og ritstjóra Lögfræðingatals til kaffisamsætis á Hótel Borg til þess að fagna útgáfu hins nýja lögfræðingatals. Til þessa samsætis þótti sérstök ástæða til að bjóða frú Olöfu Bjarnadóttur, ekkju Agnars Kl. Jónssonar, frú Guðrúnu Karlsdóttur, ekkju Benedikts Blöndal, svo og þeim Sigurði Líndal prófessor og Ragnari Aðalsteinssyni hrl. vegna tengsla þeirra fjórmenninganna við ritið Frá vinstri: Sigurður Líndal prófessor, frú Guðrún Karlsdóttir, frú Ólöf Bjarnadóttir, Garðar Gíslason hœstaréttardómari, Ragnar Aðalsteinsson hrl. og Gunnlaugur Haraldsson ritstjóri. 217

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.