Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Blaðsíða 30

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Blaðsíða 30
til gengið svo langt að jafnvel málsmetandi fólk virðist vilja kasta fyrir róða grundvallarhugtökum eins og sekt eða sýknu eða gera sönnunarbyrði öfuga með því að láta ákærðan mann t.d. fyrir kynferðisbrot sanna sakleysi sitt. Þó svo að reiði og andúð almennings sé skiljanleg þegar um gróf brot er að ræða hlýtur samt réttarríkið að grundvallast á því að dómstólar skeri úr um sekt eða sýknu enda vandfundin önnur stofnun þjóðfélagsins sem betur væri til þess fallin. En vrkjum aftur að Línu Langsokk og Spúnknum hennar. Hvað eiga menn við þegar rætt er um að eitt ár eða jafnvel tíu sé allt of lítið fyrir þetta eða hitt afbrotið. Hvað er eitt ár í fangelsi, hvað er einn mánuður í fangelsi? Hvað er það sem gerist frá því að afbrot er framið, rannsókn lögreglu hefst, mál sent til ríkissaksóknara og ákæra gefin út, dómur fellur og afplánun hefst? Eins og allir í þessum sal vita getur þetta ferli tekið allt frá nokkrum klukkutímum og til margra ára og er að sjálfsögðu ekki hluti af refsingunni sjálfri, nema um sé að ræða gæsluvarðhaldsvist. Ég geri mér einnig fulla grein fyrir því að fómarlamb afbrotamannsins í vissum málum kvelst oft líka á þessum sama tíma og jafnvel ævilangt. Það er hins vegar önnur umræða og síst vandaminni en sú sem hér er til umfjöllunar. En hvaða forsendur eða viðmið er það sem fólk hefur þegar það segir að ákveðinn tími segjum t.d. eitt ár í fangelsi sé stuttur tími? Er það vegna þess að eitt ár sé svo lítill hluti af heildarævinni, eða vegna þess að árið sé fljótt að líða í fangelsinu? Hvemig líður tíminn í refsivistinni? Er hann jafn lengi að líða í fangelsi í Timbúktú og í Tyrklandi, eða á Kvíabryggju og Litla Hrauni? Hver er munurinn á tímanum í öryggisálmunni og á fyrirmyndardeildinni á síðast nefnda staðnum? Líður tíminn jafn seint og þegar við bíðum eftir strætó í kulda og trekki, eða jafn fljótt og þegar við emm að sinna einhverjum hugðarefnum þar sem tíminn hreinlega gleymist? Eitthvað mitt á milli kannski? Hvernig líður tíminn hjá ástvinum þess seka sem ekkert hafa til saka unnið? Hvað með stimp- ilinn sem fylgir mönnum jafnvel út ævitímann allan eftir losun úr refsivist? Ég ætla ekki að reyna að svara öllum þessum spumingum til hlítar hér og nú, heldur er ég aðeins að benda á afstæði tímans. Þegar betur er að gáð held ég nefnilega að í mörgum tilfellum viti fólk almennt lítið meira um refsivistina og inntak hennar heldur en það myndi vita um Spúnkinn hennar Línu. Þegar menn eru að meta þyngd refsinga hlýtur það að skipta höfuðmáli að mælieiningin liggi ljós fyrir. Hér á árum áður þótti það ekki gáfulegur trésmiður sem ekki notaði tommustokk eða verkfræðingur sem ekki notaði reiknistokk. Það liggur sem sagt mun ljósara fyrir hvað er einn meter eða eitt kíló heldur en eins mánaðar refsivist. Það sama gildir ekki um fésektir eða ýmis refsilæg viðurlög. Við gerum okkur t.d. mun betur grein fyrir ákveðinni fésekt eða sviptingu ökuréttinda. Slíkir hlutir standa okkur mun nær. í sannleika sagt held ég að fáir viti um þetta svo neinu nemi, nema þeir sem í fangelsi eru dæmdir, aðstandendur þeirra og nánir vinir svo og fangaverðir. 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.