Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Blaðsíða 69
kynnt sér starfsemi enskra dómstóla og enskt réttarfar. Dómaramir heimsóttu
dómstóla á öllum stigum. Byrjað var í Magistrates' court í opinberum málun og
County Court í einkamálum, farið var í Old Bailey, Law Courts og Middle
Temple Inn þar sem starfsemi sú er þar fer fram var kynnt. Þá var þátttakendum
og mökum þeirra borið að skoða þinghúsið og Big Ben.
Frekari frásögn af ferð þessari bíður betri tíma en ferðin var að öllu leyti hin
fróðlegasta.
Mikill áhugi var á þátttöku í ferðinni og sóttu 31 dómari um að fara en eftir-
taldir 20 dómarar fóm í ferðina:
Allan Y. Magnússon, Auður Þorbergsdóttir, Eggert Óskarsson, Friðgeir
Bjömsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Helgi I. Jónsson, Ingibjörg
Benediktsdóttir, Jón Ragnar Þorsteinsson, Markús Sigurbjömsson, Ólafur
Börkur Þorvaldsson, Ólöf Pétursdóttir, Páll Þorsteinsson, Pétur Guðgeirsson,
Sigríður Ingvarsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Steingrímur Gautur Kristjánsson,
Sveinn Sigurkarlsson, Sverrir Einarsson og Valtýr Sigurðsson.
Nefndir sem tilnefnt er í á vegum félagsins
Steingrímur Gautur Kristjánsson var tilnefndur árið 1991 í umsagnamefnd
um veitingu héraðsdómaraembætta, sbr. 5. gr. laga nr. 92/1989.
Hjördís Hákonardóttir var árið 1991 tilnefnd í gjafsóknarnefnd, sbr. 125. gr.
laga nr. 91/1991 og í sæti stjómar Mannréttindastofnunar Háskóla íslands.
DÓMARAÞING 1995
Aðalfundur Dómarafélags Islands árið 1995 var haldinn á Hótel Sögu í
Reykjavfk fimmtudaginn 9. nóvember og hófst kl. 10:00.
Formaður félagsins, Allan Vagn Magnússon héraðsdómari setti fundinn og
bauð fundarmenn velkomna. Hann fól Friðgeiri Bjömssyni dómstjóra fundar-
stjóm. Þorgeiri Inga Njálssyni héraðsdómara var falið að annast ritun fundar-
gerðar.
Fyrst var gengið til venjulegra aðalfundarstarfa.
1. Skýrsla formanns. Formaður félagsins tók til máls og gerði grein fyrir
störfum stjómar á starfsárinu. Skýrsla stjómarinnar lá frammi á fundinum og
má um hana vísa til úrdráttar sem birtur er hér að framan.
2. Endurskoðaðir félagsreikningar voru lagðir fram til samþykktar. Gjald-
keri félagsins Ólafur Börkur Þorvaldsson héraðsdómari lagði fram og skýrði
endurskoðaða reikninga félagsins, en þeir miðast við tímabilið 4. október 1994
til 2. nóvember 1995. Reikningamir voru samþykktir án mótatkvæða.
3. Stjórnarkjör. Allan Vagn Magnússon var endurkjörinn formaður félags-
ins, en hann var einn í kjöri. Ólafur Börkur Þorvaldsson, sem setið hafði í stjórn
63