Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 38
6. Er æskilegt að náð verði meira samræmi í refsingum milli landa og, ef svo verður talið, hvernig er þá mögulegt að koma því til leiðar? 1. HVERJAR ERU ÞÆR TAKMARKANIR SEM DÓMARIER AÐ LÖG- UM BUNDINN AF VIÐ ÁKVÖRÐUN FANGELSISREFSINGAR? í mörgum landanna (t.d. Danmörku, Frakklandi, íslandi, Japan, Kanada, Slóvakíu, Slóveníu og Sviss) er almenna reglan sú, að þau einu takmörk, sem dómari er bundinn af, er sú hámarksfangelsisrefsing, sem lögin kveða á um. I nokkrum þeirra (íslandi, Frakklandi, Liechtenstein, Lúxembúrg, Marokkó og Slóvakíu) er heimilt að fara niður fyrir það lágmark, sem lög bjóða, ef um alveg sérstakar refsilækkunarástæður er að ræða. Tekið skal fram, að viðfangsefnið tók einungis til óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. I Danmörku, Skotlandi og Svíþjóð eru ákvæði í lögum um, að dómara beri, áður en hann ákveður fangelsi sem refsingu, að kanna hvort ekki séu tiltæk einhver vægari refsiúrræði, sem betur eigi við með tilliti til t.d. ungs aldurs ákærða. I Danmörku er ákvæði þess efnis í almennum hegningarlögum, að (óskilorðsbundin) fangelsisrefsing ungmenna undir 18 ára aldri sé ónauðsynleg og jafnvel skaðleg. í Svíþjóð þarf að vera um alveg sérstakar aðstæður að ræða, til að ungmenni á aldrinum 18 til 21 árs verði dæmd í (óskilorðsbundið) fang- elsi. I Skotlandi eru ungmenni á aldrinum 16 til 21 árs ekki dæmd í (óskilorðs- bundið) fangelsi, nema dómari telji, að ekkert annað refsiúrræði sé við hæfi, og þarf hann að rökstyðja þá ákvörðun alveg sérstaklega. Þetta á þó ekki við um ásetningsmanndráp, en við því liggur lögbundið ævilangt fangelsi þar í landi. Einnig má nefna, að í Frakklandi ber dómara á sama hátt að færa sterk rök fyrir því hvers vegna hann telji, að (óskilorðsbundið) fangelsi sé við hæfi sem refs- ing, en ekki einhver önnur vægari viðurlög. Hið sama er uppi á teningnum í Englandi, þar sem dómarinn getur einungis ákveðið (óskilorðsbundið) fangelsi, ef hann telur að brotið sé svo alvarlegt, að þetta refsiúrræði sé réttlætanlegt. Á þetta sérstaklega við um ofbeldis- og kynferðisbrot, enda sé sé refsivist nauð- synleg til þess að tryggja öryggi almennings. Einnig má nefna, að þar í landi verða ungmenni innan 18 ára aldurs dæmd að hámarki í tveggja ára fangelsi og þá einungis vegna mjög alvarlegra brota. Þetta gildir þó ekki um manndráp af ásetningi, en þar er, líkt og í Skotlandi, lögskylt að dæma ævilangt fangelsi fyrir manndráp af ásetningi, en að öðru leyti gildir þar ofangreind meginregla, þ.e. að einu takmörkin, sem dómari er bundinn af, er hin lögboðna hámarksrefsing. Það varð niðurstaða nefndarinnar, að áður en dómari ákvæði fangelsisrefsingu sem viðurlög við broti, bæri honum að kanna, hvort ekki væri öðrum vægari viðurlagaúrræðum til að dreifa, sem væru fremur við hæfi miðað við aðstæður. 2. FRESTAR ÁFRÝJUN FULLNUSTU FANGELSISREFSINGAR? í allflestum landanna frestar áfrýjun fullnustu fangelsisrefsingar. Víða er þó gerð undantekning á því, annars vegar, ef sakbomingi er haldið í gæsluvarð- 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.