Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Qupperneq 43

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Qupperneq 43
6. ER ÆSKILEGT AÐ MEIRA SAMRÆMI í REFSINGUM NÁIST MILLI LANDA OG EF SVO VERÐUR TALIÐ, HVERNIG ER ÞÁ MÖGULEGT AÐ KOMA ÞVÍ TIL LEIÐAR? Mjög mismunandi skoðanir voru uppi um þetta álitaefni. Nokkrir fulltrúar (Danmörk, England, Frakkland, Holland, írland, ísland, Liechtenstein, Marokkó, Slóvakía og Spánn) töldu æskilegt, að meiri samræmingu yrði náð í refsingum milli landa en nú er, sérstaklega með tilliti til skipulagðrar alþjóðlegrar glæpa- starfsemi, svo sem fjársvika og fíkniefnadreifingar. Var lögð áhersla á, að slík samræming myndi hamla gegn svonefndum „glæpatúrisma“ (criminal tourism), en alþjóðlegir brotamenn leita vissulega frekar til landa, þar sem refsingar eru hvað vægastar. Sem dæmi um, hvernig unnt væri að ná fram samræmingu, voru nefnd skoðanaskipti milli dómara á alþjóðavettvangi, t.d. í Evrópuráðinu og hjá Sameinuðu þjóðunum. Sumir þátttakendumir (Kanada, Skotland, Finnland, Ítalía, Japan, Lúxembúrg og Bandaríkin) töldu ekki mögulegt að ná fram slrkri samræmingu, þar sem refsingar fyrir sama brot séu svo mismunandi milli landa vegna sérstakra þjóð- félagsaðstæðna í hverju þeirra. Þá sé mjög óraunhæft, að slíku samræmi verði náð milli þjóða, þegar litið sé til þeirrar staðreyndar, að meira að segja innan sama lands séu refsingar mjög mismunandi. Þá vom nokkrir fulltrúanna á því, að þetta væri hreinlega ekki æskilegt. NIÐURSTÖÐUR OG HUGLEIÐINGAR Athyglisvert er, að í löndum þeim, sem byggja á svonefndu „Common Law“ kerfi er meginreglan sú, að áfrýjun frestar ekki fullnustu refsingar. Þá eru skilorðsdómar mun fátíðari í þessum löndum en hérlendis. Einnig var athyglis- vert, að dómarar í nokkmm löndum, sem em með sömu eða svipaða réttar- skipan og við, t.d. Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, geta mælt fyrir um að dómum þeirra skuli tafarlaust fullnægt. Tel ég að við þyrftum að skoða þetta nánar og má í því sambandi nefna að telja verður eðlilegt, að héraðsdómari geti mælt fyrir um að dómi yfir síbrotamanni skuli fullnægt þegar í stað, en alkunna er, að talsvert hefur borið á því, að dómum sé áfrýjað nánast eingöngu í þeim tilgangi að kaupa einhvern frest. Mætti ætla, að úrræði sem þetta hamlaði gegn tilefnislausum áfrýjunum og verður eigi séð, að nein hætta ætti að vera á sakarspjöllum, þar sem Hæstiréttur hefur afgreitt opinber mál með mjög skilvirkum hætti síðastliðin ár. Þá vakti það athygli, að dómarar eru sumstaðar að velta því fyrir sér í alvöru að dæma í þyngri refsingu í ljósi þeirrar staðreyndar, að þeir vita að hinn dæmdi verður hvort eð er látinn laus löngu áður en refsitíminn er liðinn. Varðandi refsihæð virðumst við fylgja hinum Norðurlöndunum að málum og vera í vægari kantinum. Fyrir manndráp af ásetningi eru refsingar hérlendis ívið hærri en á hinum Norðurlöndunum. I nauðgunardómum er svipuð refsihæð hérlendis og í Noregi og Finnlandi, hún er hins vegar hærri hér en í Danmörku, 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.