Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 48

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 48
hálfu lögð áhersla á að leiða vitni fyrir dóm eða leggja fram frekari gögn ákæru til stuðnings er eðlilegt í ljósi þess að sönnunarbyrðin hvflir á ákæruvaldinu að dómari láti við það sitja. Ef sýnt þykir hins vegar að um lykilvitni er að ræða er Ijóst samkvæmt framansögðu að dómara ber skylda til að gæta þess að þessi vitni séu kölluð fyrir dóm eða eftir atvikum frekari gögn lögð fram. Á þetta einkum við ef líklegt er að vitni eða gögn geti verið ákærða til hagsbóta. Þótt dómari leiði ekki yfirheyrsluna, eins og áður var hefur hann að sjálf- sögðu rétt og skyldu til að koma inn í yfirheyrsluna hvenær sem er, þótt það kunni að verka truflandi á sækjanda og verjanda. Oft er t.d. hentugra að dómari spyrji þeirra spuminga sem á honum brenna, þegar verið er að fjalla um tiltek- inn þátt atburðarásar, í stað þess að spyrja í lokin, þegar komið er út í allt aðra sálma í yfirheyrslunni. Stjórn þinghaldsins er í höndum dómara og því nýtur hann þeirra forréttinda að taka til máls er honum þykir henta. Hlutverk dóm- arans er því annað og meira en að stjórna þinghaldinu. Stjóm hans á þing- haldinu skal vera innan ramma réttarfarslaga og í samræmi við þær venjur, sem myndast hafa í dómsalnum. Það fyrra er sjálfgefið en siðvenjurnar em því miður mjög misjafnar, sennilega næstum því jafn misjafnar og fjöldi dómar- anna. Þar sem ekki er svo langt um liðið frá því sækjendur mættu við meðferð málsins em þessar venjur enn að mótast, t. d. er misjafn háttur hafður á um skráningu þinghaldsins, ýmist er segulband notað eða þinghaldið skráð í tölvu, eins og áður er fram komið. í síðara tilvikinu er framburður ákærða og vitna endursagður af dómaranum. í 7. mgr. 102. gr. eldri laga um meðferð opinberra mála nr. 74/1974 sagði: „Bóka skal svörin svo, að ótvírætt og tæmandi komi fram efnið í svömm og orðrétt jafnan, ef ástæða er til að ætla, að orðrétt bókun geti skipt máli um mál almennt eða einstök sakaratriði“. Þetta ákvæði er hvergi að finna í hinum nýju lögum, sem bendir til að þennan hátt hafi ekki átt að viðhafa í hinum nýja sið. Þótt sú aðferð að endursegja framburð, hvort sem sú endursögn er rituð á tölvu eða færð á segulband, spari dómaranum oft vinnu við samningu dóms, ef svo ber undir, og lestur framburðar sem endursagður hefur verið í styttra mál á tölvu sé mun læsilegri en þvaðrið á segulböndunum, verður ekki fram hjá því litið, að sá háttur er umdeildur. Framburður viðkomandi kemst ekki til skila, hvorki hrynjandi hans, ef svo má að orði komast, né orðfæri viðkomandi, sem allir vita að er ærið misjafnt. Af endursögn verður ekki að fullu ráðið, þótt dómari hafi mikla þjálfun í slíkri bókun, hversu einbeittur og skýr framburður hefur verið. í löngum yfirheyrslum fer heldur ekki hjá því að það er tímafrekt að endursegja framburð, þótt sumir dómarar hafi þá tækni að lesa hann jafn- óðum inn. A meðan á slíkum lestri stendur má ætla að þinghaldið gangi ekki jafn „smurt“ og það ætti að ganga. Ég er þess einnig fullviss, ekki síst af sam- tölum mínum við ýmsa verjendur, að það virkar einkennilega á ákærðu og vitni, þegar bókun framburðarins og upplestur í lok þinghalds hefst, viðkomandi er þá búinn að tjá sig í heyranda hljóði, en þarf síðan að hlusta á endursögn fram- burðar, sem stundum nær hreint ekki því sem menn sögðu, hætta er á að mönn- 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.