Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 56
3.2 Ákærandi (sækjandi) flytur opinbert mál af hálfu ákæruvaldsins
Sá sem annast flutning opinbers máls fyrir dómi af ákæruvaldsins hálfu er í
lögum nr. 19/1991 nefndur ákærandi, en í framkvæmd er hann einnig oft
nefndur sækjandi. Sú hugtakanotkun á að mörgu leyti betur við, enda er hún
táknræn fyrir það hlutverk sem fulltrúa ákæruvaldsins er ætlað við málsmeðferð
opinbers máls fyrir dómi. Notkun hugtaksins sækjandi í þessu sambandi styðst
einnig að nokkru leyti við nokkur ákvæði laga nr. 19/1991, sbr. t.a.m. 161. og
162. gr. laganna, auk þess sem hún á sér sögulegar rætur.4
í greinargerð með lögum nr. 19/1991 er hugtakið ákærandi annars skilgreint
með svofelldum hætti: „Orðið ákærandi er víða notað um viðeigandi handhafa
ákæruvalds, en þeir geta verið, auk ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara,
aðrir saksóknarar eða lögreglustjórar, svo og fulltrúar þeirra“.5 Skilgreining á
hugtakinu sækjandi liggur ekki fyrir, en víst má þó telja að hugtakið verði skýrt
all miklu þrengra en hugtakið ákærandi hér að ofan.
í héraði flytja ríkissaksóknari, vararíkissaksóknari, saksóknarar eða fulltrúar
ríkissaksóknara þau mál sem ríkissaksóknari höfðar, sbr. 1. mgr. 29. gr. oml.
Ríkissaksóknara er einnig heimilt að fela héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmanni
flutning máls í héraði, en þessi heimild mun ekki hafa verið mikið notuð í seinni
tíð. Ríkissaksóknari getur ennfremur falið lögreglustjórum sókn mála í héraði,
þ.á m. rannsóknarlögreglustjóra ríkisins, en lögreglustjórar geta í slíkum tilvik-
um falið löglærðum starfsmönnum sínum sókn slíkra mála eða öðrum lög-
reglustjórum, ef sérstaklega stendur á, sbr. 1. mgr. 29. gr. oml. Lögreglustjórar
annast flutning fyrir héraðsdómi í þeim málum sem þeir höfða, en þeir geta
einnig falið starfsmönnum sínum, löglærðum eða ólöglærðum, að flytja þau
mál, auk þess sem þeir geta falið öðrum lögreglustjórum að sækja þing í máli,
sbr. 2. mgr. 29. gr. oml.
Ríkissaksóknari sækir sjálfur mál í Hæstarétti, hvort heldur sem lögreglustjóri
hefur farið með sókn inálsins á héraðsdómstigi eða sækjandi við embætti
ríkissaksóknara, en ríkissaksóknari getur einnig falið vararíkissaksóknara eða
saksóknurum flutning mála fyrir réttinum. Ríkissaksóknari getur ennfremur
falið hæstaréttarlögmanni að sækja mál fyrir Hæstarétti og nefnist hann þá
saksóknari og hefur skyldur sem slíkur, sbr. niðurlag 3. mgr. 29. gr. oml.
3.3 Skipaður verjandi flytur mál af hálfu ákærða
3.3.1 Réttur eða skylda til skipunar verjanda
Ef opinberu máli verður lokið á grundvelli svonefndrar játningarmeðferðar
samkvæmt 124.-126. gr. oml. þá ber dómara því aðeins að skipa ákærðum
manni verjanda, ef hann óskar þess sjálfur.
4 Má í þessu sambandi vitna til ýmissa ákvæða eldri laga um meðferð opinberra mála nr.
74/1974, t.a.m. 131.-135. gr. þeirra laga.
5 Sjá greinargerð með lögum nr. 19/1991, sérprentun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, bls. 62.
50