Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Page 68
Erlend samskipti
Sagt er frá því að þing Alþjóðasambands dómara hafi verið haldið í Túnis
dagana 14.-17. september 1995
Þátttakendur á þinginu af hálfu Dómarafélags Islands hafi verið Ólöf Péturs-
dóttir sem setið hafi í fyrstu nefnd þingsins, þar sem rætt hafi verið um stjórnun
dómskerfisins.
Hjördís Hákonardóttir sem setið hafi í annarri nefnd þar sem fjallað hafi verið
um meðferð gjaldþrotamála.
Helgi I. Jónsson sem setið hafi í þriðju nefnd þar sem fjallað hafi verið um
fangelsisrefsingar.
Af hálfu Dómarafélags íslands hafi Hjördís Hákonardóttir setið aðalfund
Alþjóðasambands dómara.
Forseti Alþjóðasamtaka dómara sé Rainer Voss frá Þýskalandi.
Þá hafi aðalfundur Evrópudeildar alþjóðasambandsins verið haldinn í
tengslum við þingið en þar eigi sæti dómarar frá löndum Evrópubandalagins.
Evrópsku dómararnir utan bandalagsins séu áheymarfulltrúar á þinginu.
Evrópudeild Alþjóðasamtaka dómara hafi boðað til fundar þann 27. apríl
1995 í San Sebastian á Spáni, sem Allan V. Magnússon hafi sótt. Þar hafi verið
rætt samstarf deildarinnar við Evrópusambandið og staða hennar innan
Alþjóðasambands dómara.
Allan V. Magnússon hafi tekið þátt í málþingi SEND (Samarbetsorganet för
efterutbildning av nordiska domare) um ábyrgð dómara á meðferð sakamála
sem haldið hafi verið í Stokkhólmi dagana 30. ágúst til 1. september 1995.
Þátttakendur hafi verið 36. Einnig hafi Allan setið fund SEND sem haldinn var
29. ágúst 1995, en á honum hafi verið ákveðið að halda málþing í Þrándheimi
í Noregi 2.-6. september 1997 þar sem fjallað verði um efni á sviði einka-
málaréttarfars og eitthvert efni af alþjóðasviði.
Þá sé fyrirhugað málþing um áfrýjunardómstigið í ársbyrjun 1997 í Jön-
köbing í Svíþjóð, en allar hinar þjóðimar séu með málsmeðferð á því stigi til
endurskoðunar um þessar mundir.
Fundir norrænu dómarafélaganna
Ólöf Pétursdóttir sótti þing norskra dómara í Lillehammer 22.-25. júní 1995
og Friðgeir Bjömsson þing danskra dómara í Nyborg á Fjóni 6.-7. október
1995.
Málþing um sjórétt
Málþingið „Det 10. Nordiske Dommerseminar i Sjprett" hafi verið haldið
25.-26. september sl. í Enköping í Svíþjóð. Jón Finnbjörnsson dómarafulltrúi
sótti málþingið að tilhlutan DÍ.
Dómaraferð til Lundúna
Svofelld grein er gerð fyrir dómaraferðinni: „Dagana 7.-14. október fór hópur
dómara til Lundúna. Ferð þessi var í því skyni farin að íslenskir dómarar gætu
62