Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 48

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 48
lýðsfélögin stjórna ýmist ein eða í samvinnu við atvinnurekendur. Af þeim ástæðum hefur lífeyrissjóðum launafólks verið sniðinn stakkur í lögum enda mynda þeir einn horsteinanna í lífeyris- og tryggingakerfinu auk þess að vera áhrifaaðilar á fjármálamarkaði. Þessi sérstaða getur einnig kallað fram viðbrögð af hálfu einkafyrirtækja sem talið geta starfsemi verkalýðsfélaganna og ráð- stöfun sjóða þeirra ógna stöðu sinni á samkeppnismarkaði eða koma í veg fyrir að þau komist á eðlilegan hátt inn á tiltekinn markað eins og t.d. lífeyris- markaðinn. Rúm 85% launafólks á aðild að verkalýðsfélögum hér á landi.6 Þessi mikla aðild ásamt sterkri fjárhagsstöðu, breyttum áherslum og þörfum félagsmanna hefur á síðustu árum breikkað starfsvettvang verkalýðshreyfingarinnar. Þetta hefur gerst á sviði orlofs- og ferðamála, t.d. með kaupum og leigu orlofshúsa og tjaldvagna og á sviði tryggingamála, t.d. með rýmkun á bótarétti úr sjúkra- sjóðum verkalýðsfélaganna og með kaupum á hóptryggingum. Báðir þessir þættir byggja á ákvæðum kjarasamninga um tiltekin starfskjör (greiðslur at- vinnurekenda til sjúkra- og orlofssjóða)7 sem samkvæmt beinni orðskýringu á 2. mgr. 2. gr. samkeppnislaga nr. 8/19938 (SKL) eru undanþegin ákvæðum lag- anna. M.a. þessir þættir í starfsemi verkalýðsfélaganna geta skarast við starf- semi einkafyrirtækja sem á hinn bóginn lýtur SKL. Innan verkalýðsfélaganna getur komið upp ágreiningur um starfsemi þeirra og einstök verkefni sem ákveðið er að vinna að. Þegar „venjuleg“ félög eiga í hlut hefur hver félagsmaður sem ekki vill sæta ákvörðun meirihlutans rétt til þess að yfirgefa félagið telji hann það ekki þjóna áhugamálum sínum eða hags- munum. Engum dylst hins vegar að hverjum vinnandi manni er mikilvægt að vera í verkalýðsfélagi, geta notið þjónustu þess og sjóða auk þess að njóta verndar kjarasamninga. Markmiðum, starfsemi og umsvifum verkalýðsfélaga þarf því að skipa með tilliti til þessara þátta og þá þannig að ágreiningur um starfsemina, þegar lögbundinni og eða hefðbundinni hagsmunagæslu sleppir, leiði ekki til þess að hópar launafólks telji sig nauðbeygða til þess að standa utan verkalýðsfélaga. Núningsfletirnir geta því í fyrsta lagi verið við stjómvöld, í öðm lagi við ýmis fyrirtæki í rekstri og þjónustu og í þriðja lagi við félagsmenn verkalýðsfé- laganna sjálfra. Komi upp alvarlegur ágreiningur þarf úr honum að leysa. í 6 Vinnumarkaður 1998. Hagstofa íslands. Nóvember 1999, bls. 173-174. 7 Sjá t.d. 10. kafla kjarasamnings milli Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Samtaka atvinnulífs- ins um 1% og 0,25% af iðgjöldum til sjúkra- og orlofssjóðs félagsins, sbr. og 6. gr. 1. nr. 55/1980 þar sem segir: „Öllum atvinnurekendum er skylt að greiða í sjúkrasjóði og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga iðgjöld þau, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni, og sam- kvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina. Atvinnurekanda er skylt að halda eftir af launum starfsmanns iðgjaldi hans til viðkomandi stéttarfélags samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina". 8 2. mgr. 2. gr. 1. nr. 8/1993: „Lögin taka ekki til launa eða annarra starfskjara launþega samkvæmt kjarasamningum". 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.