Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 56

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 56
an virðist það vera skilyrði þess að starfsemi teljist atvinnustarfsemi að einhver eða einhverjir hafi atvinnu við hana, þ.e. hafi framfærslu af starfseminni alveg eða að hluta. Samkvæmt þeim skilningi liggur beint við að telja starfsemi verkalýðsfélaga atvinnustarfsemi í skilningi SKL enda hefur nokkur hópur fólks þar atvinnu. í 2. mgr. 4. gr. SKL28 er einu skilyrði bætt við þessa skilgreiningu og tiltekið að versla verði eða sýsla gegn endurgjaldi til þess að starfsemi teljist vera atvinnustarfsemi. Ekki breytir þetta skilyrði fyrrgreindri niðurstöðu um að starfsemi verkalýðsfélaga sé atvinnustarfsemi enda er öll þjónusta þeirra kostuð af félagsgjöldum, þ.e. innt af hendi gegn endurgjaldi félagsmanna ellegar kost- uð úr sjóðum sem stofnað hefur verið til í kjarasamningum og áður hafa verið nefnd dæmi um. Ofanrituð bein skýring á ákvæðum 2. gr., sbr. 4. gr. SKL, er ekki alls kostar fullnægjandi. í greinargerð með 4. gr. SKL er greinin ekki talin þarfnast skýringa en langur vegur er frá því að það sé rétt, a.m.k. hvað verkalýðsfélög og starfsemi þeirra varðar. í ljósi EES-samkeppnisréttarins getur hún jafnframt verið beinlínis röng þegar kemur að starfsemi verkalýðsfélaga, samtaka þeirra og sjóða, þó að þjónusta þeirra veiti atvinnu og sé innt af hendi gegn end- urgjaldi. EES-samkeppnisrétturinn varpar ljósi á það en skýra verður íslensk samkeppnislög til samræmis við hann. 5,3 EES-samkeppnisréttur Hugtakið fyrirtæki er skilgreint í EES-rétti með nokkuð öðrum áherslum en gert er í SKL. Dómar ED skipta hér verulegu máli.29 Þar hefur hugtakið m.a. verið skýrt þannig að fyrirtæki sé „hver sá aðili sem er aðili að fjárhagslegri starfsemi óháð formi eignarhalds eða því hvernig starfsemin er fjármögnuð11.30 28 Sjá neðanmálsgrein 23. 29 Skv. lögum nr. 13/1993 um Evrópska efnahagssvæðið (EES) ber íslenskum dómstólum að skýra íslensk lög til samræmis við EES-samninginn en í 3. gr. iaganna segir: „Skýra skal lög og regíur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja“. I 6. gr. EES-samningsins segir síðan m.a.: „Með fyrirvara um þróun dómsúrlausna í framtíðinni ber við framkvæmd og beitingu ákvæða samnings þessa að túlka þau í samræmi við úrskurði dómstóls Evrópubandalaganna sem máli skipta og kveðnir hafa verið upp fyrir undirritunardag samnings þessa“. Skv. þessu tilheyra EES-réttinum dómsúrlausnir Evrópudómstólsins frá því fyrir gerð samningsins um EES. Um dómsniðurstöður eftir það og samræmda túlkun í ES- og EES-rétti segir síðan m.a. í 105. gr. samningsins um EES: „Sameiginlega EES-nefndin skal stöðugt hafa til skoðunar þróun dómsúrlausna dómstóls Evrópubandalaganna og EFTA-dómstólsins sem kveðið er á um í 2. mgr. 108. gr. í þessum tilgangi skal senda dóma þessara dómstóla til sameiginlegu EES- nefndarinnar sem skal gera ráðstafanir til að varðveita einsleita túlkun á samningnum". 30 ED nr. C-41/90 Höfner og Elser gegn Macrotton, C-41/91, bls. 1979. í textanum hér að ofan hef ég þýtt eftirfarandi skilgreinungu dómstólsins: „every entity engaged in an economic activity, regardless of the legal status of the entity and the way in which it is fmanced". I þessu máli var þýska miðlunin Bundesanstalt fiir Arbeit (BA) talin vera fyrirtæki í skilningi Evrópuréttarins en BA hafði að lögum einkarétt til vinnumiðlunar. 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.