Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 69

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 69
valdi og skilríki fyrir því að skilyrðum 8. gr. fyrir viðurkenningu og fullnustu sé fullnægt ef ákvörðun hefur verið tekin að varnaraðila fjarstöddum. Enn frem- ur skal fylgja vottorð þess efnis að ákvörðunin sé fullnustuhæf í upphafsríkinu. Telja verður nægjanlegt að upplýsingar samkvæmt 1. mgr. komi fram áður en mál er tekið til úrskurðar sé þeirra ekki getið í aðfararbeiðni. Vanræksla á þessu myndi þó ekki leiða til synjunar á innsetningargerð. Á hinn bóginn er afar brýnt að skilyrðum 2. mgr. sé fullnægt en ella ber að synja um gerðina. I 15. gr. laganna er tilgreint hvaða upplýsingar skuli koma fram í beiðni á grundvelli Haagsamningsins og hvaða gögn skuli fylgja beiðni. Við meðferð slíkra afhendingarmála getur héraðsdómari enn fremur ákveðið, sé þess kostur, að leggja skuli fram yfirlýsingu frá viðkomandi upprunaríki um að ólögmætt hafi verið að fara með bam eða halda því, sbr. 3. mgr. Hæstiréttur neytti þessa úrræðis í Spánarmálinu og byggði niðurstöðu sína að verulegu leyti á álitsgerð spænskra yfirvalda þess efnis að flutningur móður á tveimur bömum til íslands hefði verið brot á forsjárrétti föður í skilningi 1. töluliðar 5. gr. Haagsamnings- ins sem faðirinn nyti samkvæmt spænskum lögum og skilnaðarsamningi aðila svo og að brottflutningurinn hefði verið ólögmætur eftir ákvæði 1. töluliðar 1. mgr. 3. gr. samningsins. Þar sem engir þeir annmarkar voru á álitsgerðinni sem valdið gætu því að íslenskum dómstólum bæri að hafna að leggja hana til grundvallar í þessum efnum taldi Hæstiréttur óhjákvæmilegt að líta svo á að um ólögmætan brottflutning hefði verið að ræða. Svipaðar röksemdir voru fyrir hendi í dómi Hæstaréttar 6. desember 2000 í máli nr. 399/2000. Samkvæmt 16. laganna skal meðferð afhendingarmála hraðað svo sem unnt er. Hafi ekki verið tekin ákvörðun um afhendingu samkvæmt Haagsamningnum innan sex vikna frá því að beiðni barst frá héraðsdómi skal dómurinn samkvæmt beiðni frá gerðarbeiðanda gera grein fyrir ástæðum þess. Evrópusamningurinn hefur ekki hliðstætt ákvæði um tímafresti. Eftirlitsnefnd með framkvæmd samnings- ins hefur þó gert samhljóða ályktun þar sem mælt er með því að ákvörðun sé tekin innan sex vikna frá því að beiðni barst móttökustjórnvaldi. Ákvæðið ber að skilja svo að hafi viðkomandi dómstóll eða stjórnvald ekki komist að niður- stöðu innan sex vikna frá þeim degi er meðferð máls hófst, væntanlega hjá mót- tökustjórnvaldinu, eigi gerðarbeiðandi eða móttökustjórnvald í upphafsríkinu rétt á því að gerð verði grein fyrir ástæðum tafar. Eins og dómstólaskipan er háttað hér á landi verður að ætla að það sé héraðsdómur sem almennt eigi að komast að niðurstöðu innan sex vikna frá því að beiðni barst frá upphafsríkinu hvort heldur sem hún berst dóminum beint eða fyrir milligöngu dómsmálaráðu- neytisins. Reglan um skjóta málsmeðferð er einnig tryggð með ákvæðum aðfararlaga nr. 90/1989, sbr. 1. mgr. 12. gr., þar sem fram kemur að héraðsdómari skuli taka aðfararbeiðni til athugunar svo fljótt sem við verður komið og 20. gr. laganna þar sem segir að sýslumaður skuli ákveða svo fljótt sem við verður komið hvar og hvenær aðför fari fram. Ekki verður annað séð en íslenskir héraðsdómstólar hafi staðið sig fremur vel 63
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.