Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 74

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 74
borist hingað til lands á grundvelli samningsins. í fjórum þessara tilvika hefur dómsmálaráðuneytið, sem móttökustjórnvald, stuðlað að sátt eða niðurfellingu mála. Ellefu mál hafa borist héraðsdómstólum til meðferðar en þar af hafa sjö mál farið til Hæstaréttar. A sama tímabili hafa níu mál verið send utan til með- ferðar erlendra stjórnvalda og dómstóla. Einu þeirra lauk þó með sátt í dóms- málaráðuneytinu, þremur með sátt í viðkomandi móttökuríki og fimm með úrskurði um afhendingu bama til Islands. Við skulum líta á hæstaréttardómana sjö og athuga á hvaða reglur 12. gr. reyndi helst við úrlausn þeirra mála. Fyrst ber að nefna H 1998 726 (,,Svíþjóðarmálið“). Málsatvik voru þau að íslensk kona og maður sem búið höfðu saman í óvígðri sambúð í Svíþjóð í 16 ár slitu samvistum í ágúst 1997 án þess að gengið væri formlega frá sambúðar- slitum. Þau gerðu með sér samning um sameiginlega forsjá 9 ára dóttur en leit- uðu ekki eftir staðfestingu valdsmanns á samkomulaginu. Eftir sambúðarslitin bjó stúlkan hjá móður en umgekkst föður sinn mikið. Móðirin fór til Stokk- hólms í eina viku í byrjun desember 1997 en á meðan var stúlkan hjá föður sínum. Hann fór með hana til íslands 5. desember og neitaði móður um skil á barninu aftur til Svíþjóðar. Héraðsdómur skipaður einum embættisdómara byggði niðurstöðu sína á því að fram hefði komið í vottorðum sænskra yfir- valda að þar sem forsjársamningurinn hefði ekki hlotið opinbera staðfestingu færi móðirin ein með forsjá barnsins samkvæmt sænskum lögum. Dómurinn gerði því manninum að afhenda konunni barnið án tafar og vísaði meðal annars til 11. gr. laga nr. 160/1995 en ellegar mætti koma á afhendingu með innsetn- ingargerð. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms og benti sérstaklega á að maðurinn hefði ekki borið fram gegn kröfu konunnar rökstudd andmæli á grundvelli 12. gr. laga nr. 160/1995. Af málatilbúnaði gerðarþola (mannsins) verður ekki séð að hann hafi borið fyrir sig ákvæði 12. gr. laganna við meðferð málsins fyrir dómi heldur byggt á því fyrst og fremst að konan hefði afsalað sér réttindum samkvæmt forsjár- samningnum með því að lýsa því yfir að hún hygðist ekki standa við samn- inginn að öllu því leyti sem sneri að málefnum dóttur þeirra. Með því hefði konan afsalað sér forsjánni til hans samkvæmt ákvæði í samningnum. í ljósi þessa hefur dómurinn takmarkað fordæmisgildi að því er varðar beitingu und- anþágureglna 12. gr. í H 1998 3451 reyndi í fyrsta skipti á gildi Haagsamningsins í samskiptum íslands sem móttökuríkis og Bandaríkjanna sem upprunaríkis. Ég kalla því dóminn „Bandaríkin I“. Þar hafði bandarískur dómstóll hinn 4. mars 1998 ákveðið skilnaðarskilmála milli íslenskra hjóna sem búsett höfðu verið í Banda- ríkjunum um tíu ára skeið. Að ákvörðun dómsins skyldi forsjá vera sameiginleg með þremur sonum þeirra, fæddum 1987, 1990 og 1991. Faðirinn skyldi hafa rúman umgengnisrétt við börnin en þau skyldu eiga heimili hjá móður innan X- fylkis og mátti hún ekki flytja þau út fyrir umdæmið án sérstaks leyfis eða samkomulags í því skyni að breyta heimilisfesti þeirra. Móðirin fór með börnin til íslands og hélt þeim þar með ólögmætum hætti frá því í júní 1998. Með 68
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.