Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 81

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 81
samningsins og Haagsamningsins, í þeim tilvikum þar sem fallist er á afhend- ingu eða skil á bami til annars samningsríkis, að viðkomandi foreldri sem skila á barni er veittur ákveðinn frestur til að afhenda barn eða stuðla að afhend- ingu þess áður en unnt er að krefjast fullnustu með innsetningargerð. Reglu þessa hef ég kosið að kalla „skilareglu“ Hæstaréttar en hún byggir á 2. mgr. 84. gr. aðfararlaga. Ekki verður deilt um réttmæti þess að aðfararfrestur sé veittur í afhendingarmálum. Hitt orkar tvímælis hversu langur slíkur frestur skuli vera með tilliti til hagsmuna barnsins en þeir skulu ávallt hafðir að leiðarljósi. Reglunni var fyrst beitt í hæstaréttardómi 20. júní 2000 í svonefndu „Spánar- máli“ og hefur henni verið fylgt æ síðan. Að fenginni niðurstöðu í nefndu dómsmáli um að flutningur móður á tveimur börnum frá Spáni til íslands hefði verið ólögmætur og að taka bæri til greina kröfu föður um afhendingu barnanna sagði Hæstiréttur svo: Af aðfararorðum Haagsamningsins er sýnt að honum sé ætlað að stuðla að því að börnum, sem í skilningi hans hafa verið flutt á milli landa á ólögmætan hátt, verði skilað til þess ríkis, þar sem þau voru búsett áður en það gerðist. Verður þeirri skyldu, sem leggja má á varnaraðila [konuna] á grundvelli samningsins, þannig fullnægt með því að hún fari sjálf með drengina eða stuðli á annan hátt að för þeirra til Spánar, þar sem hún eftir atvikum gæti dvalið eins og nauðsyn krefði og farið með umsjá þeirra uns lyktir fengjust í deilum aðilanna. Em ekki efni til að telja orðalag 1. mgr. 11. gr. laga nr. 160/1995 girða fyrir þetta og leiða til þess að drengjunum verði ekki skilað með öðm móti en að færa þá í hendur sóknaraðila [föður]. Láti vamaraðili hins vegar ekki verða af skilum drengjanna á þennan hátt verður ekki undan því vikist að af- hending þeirra á grundvelli laga nr. 160/1995 og Haagsamningsins fari fram með innsetningargerð í samræmi við kröfu sóknaraðila, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Verð- ur því tekin til greina krafa sóknaraðila um að honum sé heimilt að fá syni aðilanna tekna úr umráðum varnaraðila að liðnum tveimur mánuðum frá uppsögu þessa dóms, hafi varnaraðili ekki áður orðið við skyldu sinni á þann hátt, sem áður greinir. Ekki verður deilt um réttmæti þess að konunni hafi verið heimilaðir tveir kostir til að fullnægja skyldu sinni til afhendingar á bömunum áður en til inn- setningargerðar kæmi enda lá fyrir í málinu að hún og faðir bamanna fóru saman með forsjá þeirra þegar hið ólögmæta hald hófst og hafði ekki orðið nein breyting á því þegar dómur Hæstaréttar gekk. Hitt er álitamál hvort Hæstarétti hafi verið stætt á því að kveða á um tveggja mánaða aðfararfrest áður en til innsetningar gæti komið. Lagaheimild er vissulega til staðar, eins og áður segir, en í afhendingarmálum ber einnig að gæta að þeirri meginreglu Haagsamn- ingsins að samningsríki er skylt að stuðla að því að barni sem hefur verið flutt eða er haldið á ólögmætan hátt „sé skilað sem fyrst“, sbr. 1. töluliður 1. gr. samningsins enda er markmið hans „að vemda böm gegn því að þau séu numin á brott úr sínu venjulega umhverfi“ eins og segir í athugasemdum er fylgdu fmmvarpi til 11. gr. laga nr. 160/1995. Hér verður einnig að hafa í huga að í þeim tilvikum þegar dómstóll hefur fallist á kröfu um afhendingu barns sem 75
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.