Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Síða 88
Þá þáði formaður boð danska dómarafélagsins um að sækja aðalfund félags-
ins sem haldinn var 24. og 25. október 1997.
Dagana 15.-19. september 1997 voru 10 danskir dómarar í heimsókn á
Islandi. Farið var með þá í Héraðsdóm Reykjavíkur 15. og 16. september þar
sem þeir fengu í upphafi stutt yfirlit dómstjóra, Friðgeirs Björnssonar, um dóm-
stóla á Islandi. Þá ræddu þeir við dómara um ýmis atriði varðandi réttarfar og
starfstilhögun. Þann 17. september var farið með dómarana, sem skipt hafði
verið í hópa, í Héraðsdóm Reykjaness, Héraðsdóm Suðurlands og Héraðsdóm
Vesturlands og að því loknu var tekið á móti þeim í Hæstarétti. Þann 18. sept-
ember heimsóttu þeir Stofnun Áma Magnússonar í Reykjavík og Alþingi og 19.
september var varið með þá í ferð til Þingvalla, Gullfoss, Geysis og Skálholts
undir leiðsögn Sigurðar Líndal prófessors.
2. Starfsárið 1997-1998
Aðalfundur félagsins var haldinn á Grand Hótel, Reykjavík, 9. nóvember
1997. Allan Vagn Magnússon héraðsdómari gaf ekki kost á sér til endurkjörs og
var Garðar Gíslason hæstaréttardómari kjörinn formaður félagsins. Aðrir í
stjórn vom kjörin Helgi I. Jónsson héraðsdómari, varaformaður, Eggert Oskars-
son héraðsdómari, ritari, Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari, meðstjómandi,
og Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari, gjaldkeri. í varastjóm vom kjörin Freyr
Ófeigsson dómstjóri og Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari.
Að loknum aðalfundarstörfum fóru fram almennar umræður um frumvarp til
dómstólalaga. Framsögumaður var Stefán Már Stefánsson prófessor.
Hið árlega jólahlaðborð félagsins með LMFÍ og Lögfræðingafélagi Islands
var haldið í Víkingasal Hótels Loftleiða 11. desember 1997. Þar flutti Friðrik
Sófusson fjármálaráðherra jólahugvekju og kryddaði mál sitt með sögum úr
starfinu.
Hádegisverðarfundur var haldinn 22. janúar þar sem Páll Hreinsson dósent
flutti erindi um hvort EES-réttarreglur sem teknar hafa verið upp í íslenskan
landsrétt hefðu verið birtar hér á landi í samræmi við kröfur 27. gr. stjómar-
skrárinnar og ákvæði laga nr. 64/1943 um birtingu laga og stjómvaldaerinda.
Bandarískur lagaprófessor, Thomas A. Lockney, sem annaðist kennslu við
lagadeild Háskóla íslands, hélt fjögurra vikna námskeið á vegum félagsins um
bandarískt réttarkerfi í mars 1998.
Hið árlega málþing félagsins og LMFÍ var haldið á Þingvöllum 5. júní 1998.
Fyrir hádegi flutti Davíð Þór Björgvinsson prófessor erindi um EES-rétt sem
réttarheimild í íslenskum rétti og Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri erindi um
hlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins varðandi framkvæmd
EES-samningsins. Eftir hádegi var umfjöllunarefnið undirbúningur lagasetn-
ingar á Alþingi þar sem framsögumenn voru Hrafn Bragason hæstaréttardóm-
ari, Helgi Bemódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, og Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson hæstaréttarlögmaður.
Hádegisverðarfundur var haldinn 18. september 1998 þar sem Davíð Þór
82