Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 93

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 93
skipulegt gildi laga. Eftir hádegi talaði Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. um laus- ung í lagaframkvæmd, Gísli Tryggvason hdl. velti fyrir sér þeirri spurningu hvort dómstólar ættu úrskurðarvald um hvað almenningi væri fyrir bestu og þá flutti Atli Harðarson heimspekingur erindi um hvort lýðræðið væri ofhlaðið hugtak. Eftir kaffihlé fóru fram pallborðsumræður sem þátt tóku í, auk fram- sögumanna, Ragnar Aðalsteinsson hrl., Oddný Mjöll Arnardóttir hdl. og Sig- urður Tómas Magnússon héraðsdómari. Þorgeir Örlygsson prófessor, nú settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu, flutti erindi á hádegisverðarfundi félagsins 9. nóvember um ný lög um lausafjárkaup, nr. 50/2000, sem öðlast skyldu gildi 1. júní 2001. Samráðsfundir DI og LMFI voru haldnir 17. febrúar, 6. apríl og 5. október þar sem rædd voru samskipti félaganna. Formaður og varaformaður DI áttu fund með Dómstólaráði 17. febrúar. Á fundinum voru m.a. rædd endurmenntunarmál dómara. Á aðalfundi LMFI 2000 var samþykkt sú breyting á siðareglum lögmanna að felld var á brott 2. mgr. 18. gr. áður gildandi reglna um að gagnrýni á störf og starfsháttu dómstóla mætti einungis hafa uppi á faglegum og málefnalegum grundvelli. Tillaga til þessarar breytingar var rædd á samráðsfundi DÍ og LMFÍ 16. febrúar og var þeirri skoðun DÍ komið á framfæri að félagið væri mjög ósátt við hana. Ritaði formaður félagsins LMFÍ jafnframt bréf af því tilefni þar sem sjónarmiðum DÍ var komið á framfæri og þá ritaði hann grein um sama efni sem birtist í 2. tbl. Lögmannablaðsins í maí 2000. Fundur Evrópusamtaka dómara var haldinn í höfuðborg Tékklands, Prag, 12. og 13. maí. Formaður sótti fundinn þar sem m.a. var rætt um réttarfarsástand í einstökum ríkjum Evrópu, einkum austurhluta hennar, en þar hafa dómarar átt fremur erfitt uppdráttar gagnvart framkvæmdavaldinu. Einnig var fjallað um samstarf við Evrópuráðið og ES, kjaramál dómara, aðgerðir til að koma í veg fyrir spillingu í dómskerfinu og undirbúning alþjóðaþings dómara í ár. Fundur formanna dómarafélaganna á Norðurlöndum var í þetta skiptið haldinn í Ábo í Finnlandi 25. og 26. ágúst. Sótti formaður fundinn sem fór fram í Ábo Tingsrátt. Var þar m.a. rætt um aukastörf dómara en mikil umræða er um þau nú um stundir á hinum Norðurlöndunum. Þá kynnti danski formaðurinn þá endurskoðun sem fram fer á dómstólakerfinu í Danmörku en þar er stefnt að verulegri fækkun dómstóla og að öll mál byrji í „byretten“. Alþjóðaþing dómara var haldið í brasilísku borginni Recife dagana 17. til 21. september. Fundinn sóttu formaður, Helgi I. Jónsson, varaformaður, Eggert Oskarsson og ritari, Hervör Þorvaldsdóttir. Aðalstörf þingsins fara fram í nefnd- um og á allsherjarþingi. Eggert tók þátt í störfum I. nefndar, Hervör í störfum II. nefndar og Helgi í störfum III. nefndar. Skiluðu þau skýrslum um störf nefndanna. Formaður sótti aðalfund danska dómarafélagsins sem var haldinn í Nyborg á Fjóni 3. og 4. nóvember. Með bréfí formanns réttarfarsnefndar, dagsettu 24. febrúar, var leitað eftir til- 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.