Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 94

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 94
lögum félagsins til breytingar á lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sem skyldi komið á framfæri nefndarinnar fyrir 1. maí. Ákveðið var að félagið og Dómstólaráð stæðu sameiginlega að tillögugerð. Var fundur haldinn um efnið 7. apríl þar sem félagsmönnum gafst færi á að koma ábendingum sínum á framfæri. Afrakstur þess var sá að félagið og Dómstólaráð sendu réttarfars- nefnd bréf 12. maí með ýmsum tillögum um ofangreint efni. 5. Starfsárið 2000-2001 Aðalfundur Dómarafélags íslands árið 2000 var haldinn í Kornhlöðunni, Reykjavík, 17. nóvember 2000. Formaður félagsins, Helgi I. Jónsson héraðsdómari, var endurkjörinn sem og aðrir stjórnarmenn, Eggert Oskarsson héraðsdómari, varaformaður, Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardómari, meðstjórnandi, Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari, gjaldkeri, og Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari, ritari. í vara- stjórn voru kjörin Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari og Freyr Ófeigsson dómstjóri. Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari flutti erindi um rökstuðning dóma. Gerði hún þar grein fyrir lagareglum sem hafa áhrif á hvemig beri að haga rök- færslu í dómi og fjallaði um hugtökin rök, rökfræði og rökfærslu. Þá kynnti hún niðurstöður kannana á reglunum og hvernig metið verði hvort úrlausnir dóm- stóla teljist studdar fullnægjandi rökum. Árlegt jólahlaðborð félagsins með Lögfræðingafélagi íslands og Lögmanna- félagi Islands var samkvæmt venju haldið í Víkingasal Hótels Loftleiða fimmtudaginn 7. desember. Þar flutti Davíð Oddsson forsætisráðherra gaman- sama jólahugvekju. Félagið hélt hádegisverðarfund 15. desember 2000 sem bar yfirskriftina: Rekstur samkeppnismála fyrir dómstólum - horft um öxl og hugað að framtíð, m.a. í ljósi breytinga á samkeppnislöggjöfinni með lögum nr. 107/2000. Þar flutti Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður erindi um ofangreint efni og fjallaði m.a. um yfirlit yfir helstu efnislegu breytingar sem felast í lögum nr. 107/2000, bakgrunn íslensks samkeppnisréttar, málsmeðferð í samkeppnismálum á stjóm- sýslustigi og fyrir dómstólum, svo og nokkur álitaefni tengd rekstri samkeppn- ismála fyrir dómstólunum og endurskoðunarvaldi þeirra. Þá hélt félagið hádegisverðarfund 2. febrúar 2001 þar sem Ragnheiður Bragadóttir prófessor fjallaði um hvort samfélagsþjónusta væri á réttri leið. Þar gerði hún grein fyrir samfélagsþjónustu, bæði sem leið til þess að fullnusta óskilorðsbundið fangelsi og fullnustu vararefsingar með samfélagsþjónustu. Kom þar fram að ákvörðun um samfélagsþjónustu er í höndum stjómvalda samkvæmt íslenskum lögum. Fjallaði hún um hvaða rök vom fyrir því að sú leið var farin og hvort þau rök stæðust. Komst hún að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Þá ræddi hún að lokum um hvaða áhrif samfélagsþjónusta hafi haft á afbrot. Dómarafélag íslands og Dómstólaráð héldu sameiginlegan fund 18. maí 88
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.