Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 3
Tímarit
löqfræðinqa
4. hefti • 52. áraanaur
4. hefti • 52. árgangur
desember 2002
UM HÚSLEIT
I lögum um meðferð opinberra mála er kveðið á um það að lögreglu beri að
leita úrskurðar dómara til að framkvæma ákveðnar rannsóknarathafnir. Oftast
er um að ræða leit, aðallega húsleit, hleranir síma og fjarskiptabúnaðar, hald-
lagningu hluta, auk þess sem úrskurður verður að ganga um gæsluvarðhald.
Þessar rannsóknarathafnir eru undantekningar frá þeirri mannvernd sem
stjómarskráin veitir og því ótækt að rannsakandi geti tekið um þær ákvarðanir
á eigin spýtur. Hins vegar sér rannsakandi einn um framkvæmdina þegar að
henni kemur. Heimildir í lögum um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 til að
framkvæma húsleit eru aðallega eftirfarandi:
89. gr. 1. mgr.
Heimilt er að leita í húsum sakbornings, geymslustöðum, hirslum, skipum og öðrum
farartækjum í því skyni að handtaka hann, rannsaka ummerki brots eða hafa uppi á
munum eða gögnum sem hald skal leggja á.
90. gr. 1. mgr.
Leit skv. 89. gr. skal ákveðin með úrskurði dómara nema sá sem í hlut á samþykki
hana.
94. gr. 1. mgr.
Lögreglumenn stjóma leit samkvæmt ákvæðum þessa kafla.
2. mgr.
Húsráðanda eða umráðamanni staðar, þar sem leit fer fram, skal kynnt heimild til
húsleitar og veittur kostur á að vera viðstaddur húsleit, ef unnt er, en ef hann er fjarri
skulu heimilismenn til kvaddir. Þeim má víkja brott af leitarstað trufli þeir eða hindri
leitina.
3. mgr.
Við leit skal gæta þeirrar varfærni og hlífðar sem samræmist markmiði hennar. Ekki
skal gera húsleit að næturþeli nema mjög brýn nauðsyn sé á og sakarefni stórfellt...
307