Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Blaðsíða 40

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Blaðsíða 40
Ekki er kunnugt um íslenzka dóma, þar sem ríkið er krafið um skaðabætur vegna mistaka við lögboðið eftirlit með búnaði og ástandi skráningarskyldra ökutækja. Til er danskur dómur í UfR 1976, bls. 219, þar sem kaupandi bif- reiðar fékk dæmdar bætur vegna mistaka eftirlitsaðilja við skoðun bifreiðar, og sænskur dómur í NJA 1991, bls. 138, þar sem bifreiðareigandi fékk dæmdar bætur fyrir skemmdir, sem urðu þegar dráttarbeizli húsvagns, er reyndist gallað án þess að það uppgötvaðist við skoðun, brotnaði og olli tjóni á húsvagninum.50 Ályktanir um ábyrgð hins opinbera vegna lögboðins eftirlits þess Eins og fram kemur í yfirlitinu hafa dómstólar almennt hafnað því, að til bótaábyrgðar ríkisins geti komið vegna tjóns, sem verður vegna mistaka við eftirlitið, þótt þau kunni að vera saknæm. Ekki virðast vera skörp skil milli þess hvort sá, sem eftirlitið beinist gegn, verður fyrir tjóni, eða annar sem reiðir sig á, að eftirlitsmenn hafi rækt skyldur sínar. Ekki verður þó útilokað, að munur verði gerður þar á. Þau mörk sem skaðabótaábyrgð eru sett með þessum dómum má, m.a. með hliðsjón af orðalagi í forsendum sýknudóma þeirra, sem getið hefur verið, skýra með því að þau tjón, sem um ræðir, hafi fallið utan verndartilgangs reglnanna. Er sú skýring skiljanlegri en yrðu mörkin talin dregin eftir reglum um sennilega afleiðingu, enda óvíst hvort sú skýring gæti dugað í öllum tilvikum. Ekki er þó einhugur um, að þessi skýring sé bezt.51 Annað mál er svo, hvort rétt sé að takmarka vemdartilgang reglnanna eins og gert er í dómunum. Ymislegt mælir gegn því, t.d. að þeir, sem eftirlitið beinist gegn, kosta það nú orðið að lang- mestu leyti. Eftirlitið hefur t.d., að því er varðar skráningarskyld ökutæki, verið fært frá ríkinu til einkaaðilja. Er eðlilegt að spurt sé, hvort það hafi áhrif á rétt til skaðabóta vegna mistaka við slíkt eftirlit. Ekki eru tök á að fjalla um þetta nánar hér. 3.2.4.6 Tjón á hagsmunum þriðja manns Líkamstjón Þegar maður verður fyrir líkamstjóni, leiðir það oft til þess, að aðrir verða einnig fyrir tjóni. Á það t.d. við um skyldmenni tjónþola, t.d. þegar börn slasast og þarfnast meiri og kostnaðarsamari umönnunar en áður, og þá sem hafa verið á framfæri þess, sem andast vegna líkamstjóns. Það á einnig við um vinnu- veitanda tjónþola, sem greiða þarf honum forfallalaun, án þess að fá að njóta vinnuframlags hans. Loks á það við um samstarfsmenn, t.d. meðeigendur að 50 Dómar þessir eru reifaðir stuttlega á bls. 42 og 43 í grein Arnljóts Björnssonar „Er bótaábyrgð hins opinbera vegna gáleysis starfsmanna þrengri en vinnuveitandaábyrgð almennt?" Afmælisrit Gauks Jörundssonar. 51 Arnljótur Björnsson: „Er bótaábyrgð hins opinbera vegna gáleysis starfsmanna þrengri en vinnuveitandaábyrgð almennt?" Afmælisrit Gauks Jörundssonar, bls. 45. Amljótur rökstyður t.d. að heppilegra væri að takmarka bótaábyrgð ríkisins í slíkum málum eftir reglum um sennilega afleiðingu. 344
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.