Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 41

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 41
lögmannsstofu eða sambærilegum rekstri, sem verða í heild fyrir tekjutapi vegna fjarvista tjónþola. Almenna reglan er sú, að þriðji maður geti ekki gert kröfu um skaðabætur vegna líkamstjóns annars manns.52 Frá þeirri meginreglu eru margar undan- tekningar, sem ýmist byggjast á beinum lagaákvæðum eða venju. I 12.-14. gr. skaðabótalaga eru t.d. ákvæði sem mæla fyrir um rétt til bóta fyrir missi fram- færanda og um hvemig fjárhæðir bóta skulu ákveðnar. I 2. mgr. 17. gr. sömu laga er ákvæði um rétt vinnuveitanda, sem greitt hefur forfallalaun, til þess að krefja hinn bótaskylda um aukaútgjöld, sem hann kann að hafa orðið fyrir vegna forfalla starfsmanns, t.d. vegna ráðningar afleysingamanns. Ymis dæmi má finna úr dómaframkvæmd, þar sem fallizt er á rétt foreldra til bóta vegna aukakostnaðar við umönnun bama, sem hlotið hafa varanlegan skaða í bóta- skyldum slysum, sbr. t.d. H 1991 426 og H 1992 2122. Munatjón Með sama hætti, og gerð hefur verið grein fyrir um líkamstjón, kemur það oft fyrir, að þriðji maður verður fyrir tjóni vegna munatjóns annars manns, þ.e. tjóns á mun í eigu annars manns. Meginreglan í þeim tilvikum er einnig líka sú, að þriðji maður getur ekki beint bótakröfum að þeim, sem ábyrgð ber á muna- tjóninu. Viðurkenna verður þó, að hér eru fjölmargar undantekningar og afar flókið að draga mörk skaðabótaábyrgðar milli hagsmuna, sem njóta vemdar og hagsmuna, sem gera það ekki. Bent hefur verið á, að þeir sem eigi óbein eignai- réttindi í hlut, t.d. veðhafi, geti krafið um bætur vegna tjóns á honum og vísast er það almenna reglan.53 Það leiðir þó ekki til þess, að engir aðrir geti átt rétt á bótum. Ýmis náin tengsl manns við hlut geta leitt til þess, að hann verði talinn eiga bótakröfu, ef hluturinn skemmist eða eyðileggst vegna bótaskyldrar hátt- semi annars manns. Eru ekki tök á því hér að ræða þetta nánar. Andlegt áfall þriðja manns Það hefur lengi verið meginregla í norrænum rétti, að þriðji maður, sem fær andlegt áfall vegna líkamstjóns annars manns, þótt hann sé honum nákominn, eigi ekki rétt til skaðabóta. Eins og fyrr greinir hefur þetta stundum verið rök- stutt með vísan til reglna um sennilega afleiðingu, sbr. H 1936 243, en einnig með vísan til þess, að ekki væru lagarök til að dæma bætur í slíkum tilvikum, sbr. H 1971 703. Hefur þetta einnig verið meginreglan í dönskum rétti, sbr. dóm í UfR 1988, bls. 166, sem vart hafa verið gerðar undantekningar frá í dóma- framkvæmd, sjá þó dóm í UfR 1973, bls. 451. í síðamefnda dóminum voru dæmdar bætur vegna andlegs áfalls ökumanns, sem varð fyrir því, að vélhjól, er ölvaður maður ók, lenti á bifreið hans og olli skemmdum á henni, auk þess sem stjómandi vélhjólsins lézt. Atvik málsins voru sérstök, og ljóst að öku- maður bifreiðarinnar var sjálfur í hættu og því í mikilli nálægð við tjónið. 52 A. Vinding Kruse: Erstatningsretten, bls. 290. 53 A. Vinding Kruse: Erstatningsretten, bls. 295. 345
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.