Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 25

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 25
Dómur bæjarþings Reykjavíkur frá 31. desember 1981 í málinu nr. 2609/1980 I máli þessu var deilt um rétt fjáreiganda, sem hafði átt kindur á fjörubeit í Seyðis- firði, er drápust af grútarmengun, á hendur eigendum tveggja fiskimjölsverksmiðja við fjörðinn. Grútarmengun var í firðinum og stafaði hún frá rekstri verksmiðjanna. Talið var útilokað, að mengunin gæti stafað frá loðnuveiðiskipum, þar eð langt var síðan þau höfðu landað afla á Seyðisfirði. I forsendum dómsins segir, að ekki sé vitað frá hvorri verksmiðjunni grútarmengunin stafaði. Þar sem grúturinn gæti hafa komið frá þeim báðum, og önnur þeirra var ekki útilokuð, yrði að telja að hann hefði komið frá þeim báðum. Voru verksmiðjumar dæmdar til þess að bæta tjónið óskipt. Fjáreigandinn var látinn bera þriðjung tjóns síns sjálfur, þar eð hann vissi um mengunina og ásókn fjár í fjörubeitina vegna kulda og jarðbanna.28 Sé upplýst um þátt hvorrar eða hverrar orsakar um sig í tjóni, hafa íslenzkir dómstólar skipt bótaábyrgð í sömu hlutföllum. Er það sama viðhorf og gildir í rétti annarra norrænna þjóða.29 Um þetta má vísa til: H 1980 1239 Atvik málsins vom þau, að Kópavogskaupstaður, K, hafði samið við verktakann, H, um verkþætti vegna vegaframkvæmda við Reykjanesbraut í gegnum kaupstaðinn. íbúar í fjöleignarhúsum við Ásbraut 3 og 5 höfðu mótmælt framkvæmdunum en náðu samkomulagi við K, þar sem K ábyrgðist greiðslu væntanlegra bóta vegna tjóns, sem þeir kynnu að verða fyrir. I uppgjöri K við H vegna verkkostnaðar hélt K eftir greiðslu á kr. 2.010.769, sem hann hafði greitt íbúum vegna sprunguskemmda, er þeir töldu af völdum sprenginga, sem H hafði framkvæmt vegna vegagerðarinnar. í málinu var m.a. deilt um það, hvort orsakasamband væri milli sprenginga H og þeirra skemmda, sem komu fram á fjöleignarhúsunum. Fengnir voru matsmenn og yfirmatsmenn til þess að segja álit sitt á því, hvort orsakasamband væri þama á milli eða ekki. Sérfróðir meðdómsmenn sátu í héraðsdómi. í forsendum hans segir, að niðurstaðan sé sú, að fræðilegur ómöguleiki sá á því, að sprungumyndanir í fjöl- eignarhúsunum verði raktar nema að takmörkuðu leyti til sprenginga á vegum H. Var talið, að ekki minna en 40% þeirra yrðu raktar til sprenginga H, en að öðru leyti ættu þær sér aðrar orsakir. Var K dæmt til að endurgreiða H 60% þeirrar fjárhæðar, er K hafði haldið eftir vegna þessara skemmda. Flóknari álitaefni koma upp, þegar slíkar orsakir verka ekki á sama tíma, og þegar ein eða sumar eru ábyrgðarorsakir, en ekki allar. Nefna má til skýringar dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 24. maí 2000 í málinu nr. E-2282/1998: 28 Dómurinn er ítarlega reifaður í riti Gunnars G. Schram, Umhverfisréttur, Vemdun náttúm íslands, bls. 61-62. 29 Sjá t.d. Jan Hellner og Svante Johansson: Skadestándsratt, bls. 218 og Peter Lodrup: Lærebok i erstatningsrett, bls. 299. 329
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.