Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 29

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 29
Verki ábyrgðarorsökin á undan, en hin eðlilega orsök hefði áreiðanlega verkað á eftir, ætti mismunarkenningin ekki að leiða til fullra bóta fyrir tjónþola. Hér geta komið til ýmis afbrigði, t.d. þau sem lúta að því hve langan tíma orsakirnar verkuðu. Meginreglan hlýtur að vera sú, að sá, er bótaskyldu ber á ábyrgðar- orsökinni, verði ekki látinn bæta meira tjón en hann olli í raun, sbr. dóm í: UfR 1925, bls. 769 S varð fyrir slysi við vinnu sína hjá K, er hann fékk rafstraum, þegar hann snerti háspennuleiðslu. S taldist eiga skaðabótarétt á hendur K vegna vanrækslu við að- búnað á vinnustað. Talið var að lækka bæri kröfu S vegna skemmda í vöðvaþráðum hjá honum, sem leiddu til hluta af óvinnufæmi hans, en ekki var talið, að orsök þessara vöðvaskemmda væri að rekja til slyssins. í þessu felst, að það er tjónþoli, sem ber áhættu af afleiðingum hinna svo- nefndu eðlilegu orsaka, ef ljóst er að þær hefðu orðið hinar sömu og leiddu af ábyrgðarorsökum.32 Víst er þó, að minni háttar frávik yrðu viðurkennd á þessari meginreglu. Það er alkunna, að sá sem ábyrgð ber á andláti annars manns, er skyldur til að greiða útfararkostnað, auk bóta fyrir annað tjón, sbr. 1. mgr. 12. gr. skaðabótalaga. Ekki er því tekið tillit til þess, að útfararkostnaður fellur alltaf til fyrr eða síðar. Fyrir gildistöku skaðabótalaga gilti þessi regla einnig, sbr. H 1959 367. Önnur tilvik má einnig nefna, t.d. neðangreindan dóm: H 1. febrúar 2001, mál nr. 256/2000 K var til læknismeðferðar á sjúkrahúsi frá 26. janúar til 10. febrúar og frá 24. febrúar til 14. marz vegna bakverkja. Síðasta daginn missti hann afl í fótunum og var lömunin rakin til þess, að hann hefði fengið ígerð í brjósthol, sem skaddað hefði mænuna. Var sjúkrahúsið talið bera ábyrgð á þessu heilsutjóni K. í bótamáli var deilt um bótakröfu, sem tók til þjáningabóta samkvæmt 3. gr. skaðabótalaga þann tíma, sem K var rúmfastur. Talið var rétt að dæma þjáningabætur frá 14. marz 1995, er hann varð fyrir áfalli sínu, þótt ætla mætti, að hann hefði á þessum tíma verið rúmfastur um nokkurt skeið vegna fyrri veikinda. 2.8.4 Lokaorð Ekki er tilefni til frekari umfjöllunar um hin ýmsu blæbrigði samverkandi eða sjálfstæðra tjónsorsaka. Við mat á bótaábyrgð verður að reisa niðurstöður á skilyrðiskenningunni, þegar það er unnt, eftir atvikum með þeim fyrirvörum, sem hér hefur verið gerð grein fyrir. 32 Stig j0rgensen: „Ársagsproblemer i forbindelse med personskade". Nordisk forsikringstid- skrift. 3. hefti 1960, bls. 195. 333
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.