Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 47

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 47
Talið var, að leggja bæri til grundvallar, að L hefði ekki verið með hinum þremur í aðför þeirra að I og var ekki talið unnt að líta svo á, að atlögur þeirra þriggja annars vegar og atlaga L hins vegar væru samverknaður. Var talið, að gögn málsins bentu til, að L hefði ráðist að I að eigin frumkvæði og var ekki talið sýnt fram á, að þær þrjár hefðu hvatt L til aðfararinnar, né óskað liðsinnis hennar. Var litið á aðför L, sem sérstakan verknað, þótt telja yrði að atlögur hinna þriggja hafi æst hana til aðfararinnar. Var það þó ekki talið eiga að leiða til þess, að þær yrðu látnar bera bótaábyrgð á því tjóni, sem L olli I, enda hafi viðbrögð L verið langt umfram það sem við mátti búast. Var því fallizt á það með héraðsdómara, að tjón, sem L olli I, gæti ekki talizt sennileg afleiðing af hegðun hinna þriggja. Voru þær því sýknaðar af bótakröfu I. 3.5.2 Pýðing þess, að tjónþoli sjálfur hefur áhrif á atburðarás fram að frumtjóni Flest þau tilvik, þegar tjónþoli hefur sjálfur áhrif á atburðarás, sem leiðir til þess að tjón verður eða það verður meira en ella, niyndu metin sem eigin sök tjónþolans, fremur en álitaefni um sennilega afleiðingu. Ekki er þó útilokað, að sá er viðhefur bótaskylda háttsemi yrði talinn bera fulla ábyrgð á tjóni, þótt sýnt væri fram á, að tjónþolinn hefði með háttsemi sinni haft áhrif á það að tjón varð, eða að það varð meira en ella hefði orðið. Þau tilvik, sem hér eru einkum til athugunar, eru þegar tjónþoli reynir að forða tjóni í fáti eða örvæntingu, en tekst ekki betur en svo, að hann veldur tjóni eða eykur það. Með sama hætti og í síðasta kafla getur það þó leyst hinn bótaskylda undan ábyrgð sinni, ef atburða- rásin þróast á þann veg, fyrir atbeina tjónþolans, sem hann ekki gat séð fyrir. 3.5.3 Afleiðingar tjóns, þ.e. atburðarás frá frumtjóni til afleiðinga Ef afleiðingar tjóns eru venjulegar, leysa reglur um sennilega afleiðingu hinn bótaskylda ekki undan ábyrgð hans, jafnvel þótt atburðarásin fram að frumtjóni kunni að hafa verið óvenjuleg, þótt ekki hafi hún verið svo sérstök, að hinn bótaskyldi leystist undan ábyrgð sinni. Þau álitamál, sem hér koma til athugunar, eru fremur tengd orsakasambandinu en að þau geti talizt sennileg afleiðing, enda um venjulegar afleiðingar að ræða. Séu afleiðingar á hinn bóginn óvenjulegar, koma sjónarmið um sennilega afleiðingu til athugunar. Óvenjulegar afleiðingar verða oft, ef tjónþolinn er sérstaklega viðkvæmur. Ef sýnt þykir, að tjónþoli hefði þrátt fyrir veikleika sinn getað lifað eðlilegu lífi, t.d. haft fulla atvinnuþátttöku, er almennt litið svo á, að hann eigi rétt til fullra bóta, þ.e. hann sé eins settur og sá, sem ekki hefði slíka veikleika.63 Dæmi um slíkt tilvik er í: H 1972 191 B vann sem kranastjóri við byggingarvinnu, er andlega vanheill maður, G, skaut nokkrum skotum að B og samstarfsmönnum hans. Eitt skot fór í gegnum rúðu í 63 Jan Hcllner og Svante Johansson: Skadest&ndsratt, bls. 209. 351
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.