Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 70

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 70
Við mat á því hvort opinber starfsmaður hafi verið bundinn þagnarskyldu um ákveðið atriði þannig að brot á henni yrði talið varða við 136. gr. hgl. yrði að líta til þeirra efnisreglna er giltu um starfssvið hans og skyldur, sjá hér til hlið- sjónar H 1996 40. Samkvæmt 18. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, er hverjum ríkisstarfsmanni skylt að gæta þagmælsku um atriði er hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirmanna eða eðli málsins. Þá kemur fram að þagnarskyldan haldist þótt látið sé af starfi. Akvæði 136. gr. hgl. lýtur eins og áður segir að þeirri aðstöðu þegar opinber starfsmaður hefur greint frá einhverju er leynt á að fara í starfi hans og þar með rofið þagnarskyldu sína. Með tilliti til efnis 18. gr. laga nr. 70/1996 mætti þannig ætla að skilyrði væru til saksóknar fyrir refsivert athæfi er varðaði við 136. gr. hgl. ef ríkisstarfsmaður yrði uppvís að því að greina frá upplýs- ingum sem yfirmaður hefði gefið skýrt til kynna að ættu að fara leynt. 2.5.2 Hvaða tegundir upplýsinga skulu „fara leynt“ samkvæmt 136. gr. hgl? Eitt helsta athugunarefni nefndar forsætisráðherra um starfsskilyrði stjórn- valda laut að þagnarskyldu starfsmanna stjórnsýslunnar. Má draga þá ályktun að nefndin hafi haft í huga þá lagaþróun sem átt hefur sér stað hér á landi að því er varðar aukna áherslu á friðhelgi einkalífs, m.a. með rýmkun á gildissviði stjómarskrárvemdarinnar með lögfestingu 9. gr. stjómarskipunarlaga nr. 97/1995, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjómarskrárinnar, og einnig með setningu nýrra laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. Á hinn bóginn hefur sú þróun einnig átt sér stað að löggjafinn hefur ákveðið að gera stjórnsýsluna gagnsærri og aðgang stjómsýsluaðila og almennings að upplýsingum í vörslu stjómsýslunnar virkari, sbr. m.a. 1. mgr. 15. gr. stjómsýslulaga og upplýsinga- lög nr. 50/1996. Með þessu lagaumhverfi skapast nokkur togstreita á milli friðhelgi einkalífs annars vegar og þess táknræna einkennis lýðræðissamfélags- ins sem endurspeglast í aðgangi almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum og gagnsærri stjórnsýslu. I þessu sambandi er í fyrsta lagi vert að huga að því hvort sú refsivernd sem felst í 136. gr. hgl. sé fullnægjandi að teknu tilliti til framangreindrar þróunar enda ljóst að það er ein af skyldum löggjafans að veita einstaklingum vernd með ákvæðum refsilaga sem gera brot annarra einstaklinga, m.a. opinberra starfsmanna, á friðhelgi manna til einkalífs refsiverð, sjá hér t.d. athugasemdir greinargerðar með frumvarpi því er varð að stjórnarskipunarlögum nr. 97/1995.34 Ekki er skýrt nánar í ákvæði 136. gr. hgl. hvaða upplýsingar það eru sem „leynt [eiga] að fara“ í merkingu ákvæðisins. Verður því almennt að ganga út frá því að úrlausn um það, hvort upplýsingar eru þess eðlis að brot opinbers starfsmanns á þagnarskyldu er þær varðar falli undir 136. gr. hgl., ráðist af 34 Alþt. 1994-1995, A-deild, bls. 2100. 374
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.