Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Blaðsíða 73
§ 152 d.
Bestemmelseme i §§ 152-152 c finder tilsvarende anvendelse pá den, som uden
at have medvirket til gemingen uberettiget skaffer sig eller udnytter oplysninger,
der er fremkommet ved en sádan overtrædelse.
Stk. 2.
Med samme straf straffes den, der uden at have medvirket til gemingen uberett-
iget videregiver oplysninger om enkeltpersoners rent private forhold, jf. forvaltn-
ingslovens § 28, stk. 1, som er fremkommet ved overtrædelse af §§ 152-152 c.
Stk. 3.
Pá samme máde straffes den, som uden at have medvirket til gemingen uberettiget
videregiver oplysninger, der er fortrolige af hensyn til statens sikkerhed eller
rigets forsvar.
§ 152 e.
Bestemmelseme i §§ 152-152 d omfatter ikke tilfælde, hvor den págældende:
1) er forpligtet til at videregive oplysningen eller
2) handler i berettiget varetagelse af ábenbar almeninteresse eller af eget eller
andres tarv.
§ 152 f.
Overtrædelse af §§ 152-152 d, hvorved der alene er krænket private interesser, er
undergivet privat pátale.
Stk. 2.
Offentlig pátale kan dog ske, nár den forurettede anmoder herom.
Tilvitnuð ákvæði hafa öll að geyma nánari afmörkun á gildissviði 152. gr.
dönsku hgl. með einum eða öðrum hætti. Er rétt að fara nokkrum orðum um
hvert ákvæði fyrir sig og um það hvort nauðsynlegt kunni að vera að huga að
sambærilegum breytingum á XIV. kafla hgl.
Ákvæði 152. gr. a felur í sér rýmkun á gerendahópi þeim sem verknaðar-
lýsing 152. gr. tekur til með því að mæla fyrir um að ákvæðið taki einnig til
þeirra er framkvæma eða hafa framkvæmt verkefni opinbers eðlis á grundvelli
samnings við opinbert yfirvald. Með tilliti til þeirrar þróunar hér á landi, sem
endurspeglast m.a. í aukinni einkavæðingu opinberrar þjónustu, er nauðsynlegt
að fram fari mat á því hvort rétt sé að setja sambærileg ákvæði í hgl. Draga má
í efa að þeir sem framkvæma eða hafa framkvæmt opinber verkefni á grundvelli
t.d. þjónustusamninga, og þiggja ekki beinlínis laun frá hinu opinbera eða falla
undir löggjöf um réttindi og skyldur slíkra starfsmanna, teljist opinberir starfs-
menn í skilningi 136. gr. hgl.
Ákvæði 1. mgr. 152. gr. b felur einnig í sér rýmkun á gerendahópi 152. gr.
með því að mæla fyrir um að þeir sem standa að rekstri eða eru í starfi á grund-
velli opinbers leyfis eða viðurkenningar, og fengið hafa vitneskju um upplýs-
ingar sem teljast trúnaðarlegs eðlis með tilliti til einkahagsmuna, falli undir það
ákvæði. Hliðstæðar athugasemdir eiga hér við og um ákvæði 152. gr. a dönsku
hgl. Þó verður að hafa í huga að miðað við eldri dómaframkvæmd og skoðanir
fræðimanna eru meiri líkur til þess að þeir sem fengið hafa opinbert leyfi eða
viðurkenningu, s.s. lögmenn, falli undir 136. gr. hgl. Ákvæði 152. gr. c er
377