Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 77

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 77
bifreiðar sem eiginkona hans flutti til landsins í stað 64,5% afskriftar og gefið upp rangt tollverð bifreiðarinnar en einnig fyrir að hafa síðar skráð inn tilhæfulausar leiðréttingar í tölvufært tollkerfi ríkistollstjóra þannig að inneign myndaðist. I niðurstöðu Hæstaréttar er tekið sérstaklega fram að við ákvörðun refsingar ákærða beri að taka tillit til þess að hann sinnti starfi yfirmanns hjá tollstjóranum í Reykja- vík og misnotaði þar stöðu sína. Ekki var hins vegar sérstaklega vísað til 138. gr. hgl. í öðrum dómi Hæstaréttar frá 17. maí 2001 í málinu nr. 71/2000 var E, oddviti hreppsnefndar, ákærður fyrir umboðssvik og fjárdrátt í opinberu starfi. Voru brotin í ákæru talin fólgin í því að E hefði misnotað aðstöðu sína til að gefa út skuldabréf í nafni hreppsins án þess að hreppsnefnd samþykkti og verja meginhluta lánsfjárins til greiðslu á öðru skuldabréfi sem var rekstri hreppsins óviðkomandi. Þá var hann talinn hafa dregið sér fé með því að hafa látið færa til inneignar á viðskiptareikning sinn tiltekna fjárhæð sem hafði verið gjaldfærð hjá sveitarsjóði sem kostnaður vegna vegagerðar í hreppnum án reikninga að baki þeirri færslu. Hæstiréttur sýknaði E af ákæru fyrir umboðssvik og taldi ósannað að auðgunarásetningur hefði legið að baki þeim gjörðum hans. Hins vegar var E sakfelldur fyrir fjárdrátt þar sem ljóst þótti að tilteknar bókhaldsfærslur hefðu leitt til lækkunar á skuld hans við hreppinn. Var með skírskotun til forsendna héraðsdóms fallist á ákvörðun refsingar E en í nefndum forsendum héraðsdóms sagði meðal annars að „við ákvörðun refsingar í málinu Lbæri] að taka sérstaklega tillit til 138. gr. almennra hegningarlaga þar sem ákærði gegndi trúnaðarstörfum og hafði sem oddviti á hendi fjárreiður [V]hrepps“. 2.8 Ákvæði 140. og 141. gr. hgl. 140. gr. hgl. Opinber starfsmaður, sem synjar eða af ásettu ráði lætur farast fyrir að gera það, sem honum er boðið á löglegan hátt, sæti sektum eða fangelsi allt að 1 ári. 141. gr. hgl. Opinber starfsmaður, sem gerist sekur um stórfellda eða ítrekaða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi sínu, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári. 2.8.1 Efnisatriði verknaðarlýsingar og dómaframkvæmd í 140. gr. hgl. er lögð refsing við því ef opinber starfsmaður synjar eða af ásettu ráði lætur farast fyrir að gera það sem honum er boðið á löglegan hátt. I lögskýringargögnum er rakið að ákvæðið sé samhljóða 143. gr. hegningarlag- anna 1869 og sé refsað fyrir það „að óhlýðnast lögmætum fyrirskipunum yfir- boðara (insubordination)“. Ákvæðið er að meginstefnu til sambærilegt við 156. gr. dönsku hgl. sem virðist þó ekki gera kröfu um beinar fyrirskipanir frá yftr- boðara heldur geti einnig verið um að ræða skyldu sem leiðir af reglum um það opinbera starf eða þá opinberu þjónustu sem um ræðir. Að áliti höfundar skortir á samræmi milli framangreindra ummæla úr lögskýringargögnum og þeirrar ályktunar sem draga má af orðalagi 140. gr. hgl. Ekki er rökrétt að skilja orða- lagið „boðið á löglegan hátt“ með þeim hætti að það taki aðeins til fyrirskipana yfirmanns. Sú athafnaskylda sem ákvæðið lýsir kann einnig að leiða af þeim lagareglum í rúmri merkingu sem gilda um hið opinbera starf sem um ræðir. 381
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.