Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Blaðsíða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Blaðsíða 25
Ákvæði 29. gr. kpl. gilda þegar hlutur er afhentur of seint. Á meðan afhend- ing hefur ekki farið fram hefur kaupandi það í hendi sér hvenær hann setur fram riftunarkröfu. Það þýðir að hann getur rift kaupum án nokkurrar fyrir fram gefinnar tilkynningar þegar greiðsludrátturinn er orðinn svo langur að almenn- um skilyrðum riftunar er fullnægt, sbr. 25.-26. gr., 43. gr. og 44. gr. laganna. Ef hlutur er alls ekki afhentur hefur kaupandi ekki sömu ástæðu til að hefjast handa og hann getur beðið og séð hverju fram vindur. Hann þarf því ekki að taka afstöðu til þess hvenær seinkun er veruleg eða hvort hann vill rifta fyrr en hann setur riftunarkröfu fram.30 Tilkynningarfrestur skv. 29. gr. byrjar ekki að líða við sjálfa afhendinguna heldur frá þeim tíma þegar kaupandinn fékk vitneskju um hana. Það skiptir á hinn bóginn ekki máli hvemig kaupandinn öðlaðist vitneskju sína. Þegar hann hefur fengið vitneskju um afhendinguna verður hann þó að hefjast handa án tafar. Mat á því hvað teljist innan sanngjarns tíma ræðst af eðli söluhlutar og aðilum samningsins. í verslunarkaupum er eðlilegt að krefjast tiltölulega skjótra viðbragða en í neytendakaupum er sanngjamt að fresturinn sé heldur lengri, sér- staklega þegar ekki er um að ræða kaup ýmissa gjaldgengra vara. Kaupandinn verður ávallt að hafa ákveðinn tíma til að taka afstöðu til þess hvers konar heim- ildum hann vill beita. Af ákvæðum 82. gr. kpl. leiðir að það er seljandinn sem ber áhættuna af því að tilkynning um riftun samkvæmt 29. gr. kpl. komi fram. Samkvæmt orðanna hljóðan á greinin aðeins við þegar dráttur verður á afhendingu aðalgreiðslunnar enda á hún eðli málsins samkvæmt illa við um vanefndir aukaskyldna.31 2.8 Fyrirspurnir og tilkynningar af hálfu seljanda til kaupanda I 24. gr. kpl. ræðir um það tilvik þegar seljandi beinir fyrirspum til kaupanda um það hvort hann vilji veita hlut viðtöku þrátt fyrir seinkun, eða seljandi tilkynn- ir kaupanda að hann muni afhenda hið selda innan tiltekins tíma, en kaupandi svar- ar ekki án ástæðulauss dráttar frá því að hann fékk tilkynninguna. Getur kaupandi þá ekki rift kaupunum ef efndir verða innan þess tíma sem nefndur var.32 30 Hugsanlegt er að rétturinn til efnda falli niður samkvæmt almennum reglum um aðgerðaleysis- áhrif ef kaupandi bíður óhæfilega lengi og án réttmætrar ástæðu með að hefjast handa um þær. Ber þá oftlega að líta svo á að réttur til að krefjast efnda sé einnig fallinn brott vegna hliðstæðs aðgerð- arleysis af hálfu seljanda. Niðurstaðan í þessum tilvikum er þá svipuð og þegar rift er kaupum. Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 94. 31 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 94-95. 32 Ákvæðið svarar til 2. mgr. 48. gr. Sþ-sáttmálans. Samkvæmt 26. gr. eldri kaupalaga glataði kaupandinn réttinum til þess að halda fast við kaupin ef hann svaraði ekki án ástæðulausrar tafar fyrirspum um þetta efni frá seljanda. í 24. gr. gildandi laga er þessu snúið við. í því felst að kaup- andinn glatar réttinum til þess að rifta kaupum ef hann svarar ekki innan hæfilegs tíma fyrirspum seljanda um það hvort kaupandinn muni veita hlut viðtöku. Sama gildir ef seljandi tilkynnir að hann vilji afhenda hið selda innan tiltekins tíma og kaupandi svarar ekki innan hæfilegs tíma. Sjá Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 82. 235
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.