Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Blaðsíða 28

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Blaðsíða 28
að kaupandi hafi átt að taka við hlutnum með takmörkunum sem leiðir af rétti þriðja manns. Sjá nánar um þetta efni 41. gr. kpl., g-lið 2. mgr. 15. gr. neyt.kpl. og 46. gr. fast.kpl. 3.2 Galli feli í sér verulegar vanefndir Samkvæmt 1. mgr. 39. gr. kpl. er það meginskilyrði riftunar að galla megi meta til verulegra vanefnda. Urlausn þess hvort um verulegan galla er að ræða eða ekki byggir á heildarmati þar sem m.a. skiptir máli hvort unnt er að bæta úr gallanum eða ekki. Ber þá að líta til þess tíma og óhagræðis sem kaupandi hefur af úrbótum. Ef seljandi vanrækir úrbætur, eða ekki tekst að bæta úr söluhlut, hefur það þýðingu fyrir heildarmatið. A það einkum við þegar um er að ræða hluti sem sérstaklega eru búnir til eða útvegaðir kaupanda. Þar sem seljandinn hefur í slíkum kaupum sérstaka hagsmuni af því að kaupandinn veiti söluhlut viðtöku verður mat á því hvort um verulegan galla er að ræða heldur strangara en ella. Hugtakið veruleg vanefnd er skilgreint í 94. gr. kpl. að því er varðar alþjóð- leg kaup og í 25. gr. Sþ-sáttmálans. Þau ákvæði geta haft þýðingu við túlkun 39. gr. I 94. gr. segir að vanefndir samningsaðila teljist verulegar ef þær leiða til slíks tjóns fyrir gagnaðila að hann telst af þeirra völdum mun verr settur en hann mátti með réttu vænta samkvæmt samningnum, nema því aðeins að sá aðili sem vanefnir hafi ekki séð það fyrir og ekki heldur skynsamur maður í sömu stöðu og við sömu aðstæður gat með sanngirni séð fyrir. Ef um er að ræða galla samhliða greiðsludrætti verður að líta til þeirra heildaráhrifa sem slíkt hefur fyrir kaupandann þegar metið er hvort skilyrði riftunar eru fyrir hendi eða ekki. Ef hið selda er samsett úr mörgum einingum ræðst þýðing gallans eða gallanna af mati á því hvaða þýðingu afhending hinna gölluðu vara hafði á kaupin í heild sinni.39 Almennt skiptir ekki máli í tengslum við riftunarréttinn hver er orsök gall- ans eða hver er orsök þess að úrbætur takast ekki eða þær eru ekki gerðar. Því geta vanefndir oft verið verulegar þótt þær sé að rekja til atvika sem seljandi fékk engu ráðið um. I 32. gr. neyt.kpl. ræðir um heimild neytanda til riftunar þegar söluhlutur er haldinn galla. Segir í ákvæðinu að í stað afsláttar samkvæmt 31. gr. geti neytandi rift kaupum nema galli sé óverulegur. Akvæði þetta er að mestu í samræmi við 1. mgr. 39. gr. kpl., en nokkur breyting var gerð á ákvæðinu og byggir sú breyting á 6. mgr. 3. gr. tilskipunar um neytendakaup. Það leiðir af orðum ákvæðisins að neytandi geti „í stað afsláttar“ krafist riftunar að skilyrði 31. gr. laganna þurfa að vera uppfyllt. Þannig má ekki hafa verið bætt úr gall- 39 í 25. gr. Sþ-sáttmálans segir að vanefndir annars aðila séu verulegar ef afleiðingar þeirra fyrir gagnaðila eru þær að hann verði sviptur því efnislega að öllu verulegu leyti sem hann mátti gera ráð fyrir af samningnum, nema ef sá sem vanefnir sá ekki slíkt fyrir og skynsamur maður í sömu stöðu og við sömu aðstæður hefði ekki séð slíkt fyrir. Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 111. 238
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.