Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Qupperneq 59

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Qupperneq 59
í öðru lagi glatast rétturinn til riftunar og nýrrar afhendingar ekki þegar ástæður þess að hlutur rýmar má rekja til aðstæðna sem ekki varða kaupandann, þ.e. hvorki er um að kenna athöfnum eða athafnaleysi kaupanda, sbr. einnig a- lið 2. mgr. 82. gr. Sþ-sáttmálans. Þetta á við um tilvik þar sem hlutur verður fyrir skemmdum af hálfu seljandans, t.d. í sambandi við úrbætur á galla eða í tengslum við uppsetningu sem seljandinn á að sjá um eftir afhendingu. Þá getur einnig komið fyrir að seljandinn gefi rangar upplýsingar um meðferð og notkun hlutarins og það leiðir til þess að hann verður fyrir skemmdum. Þá fellur einnig hér undir það tilvik þegar þriðji maður veldur tjóni á hlut. Sama gildir þegar tilviljunarkenndur atburður veldur skemmdum á hlut þótt ekki sé þess sérstak- lega getið í ákvæðinu, en það leiðir eigi að síður af orðalaginu aðstœðna sem ekki varða kaupandann. Hér má sem dæmi nefna það tilvik þegar söluhlutur eyðileggst í bruna eða bíl er stolið og hvorki kaupanda né seljanda er um að kenna í því sambandi. Um takmarkatilvik getur hins vegar verið að ræða þegar tjón verður af tilviljunarkenndri samverkan ólíkra ástæðna (casus mixtus cum culpa). í samræmi við ákvæði 12.-16. gr. kpl. leiðir það af ákvæði þessu í raun að seljandinn ber áhættuna af hlutnum, einnig eftir afhendingu, þegar kaupandinn hefur réttmæta ástæðu til riftunar.108 Samkvæmt b-lið 1. mgr. getur kaupandinn rift kaupum eða krafist nýrrar af- hendingar þegar hluturinn hefur rýmað, skemmst eða eyðilagst, og það má rekja til verknaðar sem gera varð til þess að ganga úr skugga um hvort hluturinn væri gallaður eða ekki. Samkvæmt þessu á ákvæðið ekki við um greiðsludrátt. Reglan styðst við þau rök að það eigi ekki að geta leitt til þess að riftunarrétt- urinn glatist þótt kaupandinn rannsaki hlutinn annaðhvort strax eða síðar ef rannsóknin gengur ekki lengra en góð venja segir til um, og um er að ræða nauðsynlega rannsókn til að ganga úr skugga um hvort hluturinn sé gallaður. í ákvæðinu felst m.a. að seljandinn getur ekki andmælt riftun eða nýrri afhend- ingu á þeirri forsendu að kaupandinn hefur tekið umbúðimar utan af hlutnum eða prófað hann með venjulegum hætti.109 Samkvæmt c-lið 1. mgr. 66. gr. kpl. glatar kaupandi ekki rétti sínum til rift- unar eða nýrrar afhendingar þegar söluhlutur hefur verið seldur í heild eða að hluta í venjulegum viðskiptum, eða hann hefur verið notaður eða honum breytt af kaupanda við fyrirhuguð not áður en kaupanda varð ljós eða mátti verða ljós galli sá sem leiðir til riftunar eða kröfu um afhendingu á ný. I ákvæðinu er í fyrsta lagi fjallað um tilvik þegar hlutur er seldur áfram í venjulegum viðskipt- um. Þama eru fyrst og fremst höfð í huga tilvik þegar hlutir eru keyptir með endursölu í huga. Ákvæðið nær þó einnig til þeirra tilvika þegar hlutir eru keyptir með eigin not kaupanda í huga en kaupandi kemst síðar að þeirri niðurstöðu að hann vilji selja hlutinn, t.d. vegna þess að komin er ný tegund á 108 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 147. 109 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 147-148. 269
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.