Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 78

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 78
2.6 Samþykktir ILO nr. 87 og 98 2.6.1 Akvæði samþvkkta ILO um félagafrelsi o.fl. Samþykktir ILO nr. 87 og 98 mæla hvorug fyrir um vemd verkfallsréttarins. Samt sem áður hefur á vettvangi ILO verið litið á verkfallsréttinn sem grund- vallarréttindi sem vemduð séu af samþykktunum. Byggist þessi afstaða einkum á ákvæðum 3. og 10. gr. samþykktar nr. 87. Er þar mælt fyrir um að félög launa- manna og vinnuveitenda skuli eiga rétt á að skipuleggja stjóm sína og starfsemi og setja sér stefnuskrá55 og að í merkingu samþykktarinnar sé „félag“ hvert það félag launamanna eða vinnuveitenda sem vinnur að því að bæta og vemda hag verkamanna eða vinnuveitenda. A grandvelli þessara ákvæða hafa undimefnd stjórnamefndar ILO um félagafrelsi (Freedom of Association Committee of the Governing Body of the ILO, hér eftir nefnd félagafrelsisnefndin) og sérfræð- inganefndin sem hefur eftirlit með framkvæmd samþykkta (Committee of Experts on the Application of Conventions and Recommendations, hér eftir nefnd sérfræðinganefndin eða sérfræðinganefnd ILO) margsinnis tekið fram að verkfallsrétturinn sé grundvallarréttindi launafólks og samtaka þeirra. Þær hafa jafnframt afmarkað inntak þessa réttar nánar í fjölmörgum niðurstöðum sín- um.56 Ekki hefur verið vísað eins mikið til samþykktar nr. 98 varðandi verk- fallsréttinn sem slíkan en hins vegar kemur fremur til kasta hennar þegar fjallað er um þvingaða gerðardómsmeðferð. 2.6.2 Vernd „verkfallsréttar“ samkvæmt samþykktum nr. 87 og 98 Mjög víðtækri túlkun á hugtakinu verkfall er beitt hjá ILO þar sem eftirlits- aðilar stofnunarinnar líta svo á að sérhver vinnustöðvun launafólks verði talin verkfall, hversu skammvinn og takmörkuð sem hún er. Þessi afstaða byggist á því að hvernig sem form vinnustöðvunarinnar er sé markmið hennar að gæta hagsmuna launafólks í samræmi við 3. og 10. gr. samþykktar ILO nr. 87. Tak- ntarkanir er snerta form verkfalla verða því aðeins réttlættar á vettvangi ILO ef 55 Ákvæði 3. gr. samþykktarinnar orðast svo: „1. Félög verkamanna og vinnuveitenda skulu eiga rétt á að setja sér lög og reglur, að vera algerlega óháð í vali sínu á fyrirsvarsmönnum sínum, að skipuleggja stjóm sína og starfsemi og setja sér stefnuskrá. 2. Opinber stjómvöld skulu forðast alla íhlutun, er skerða mundi þennan rétt eða hindra löglega beitingu hans“. 56 Sjá Lee Swepston: „Human Rights Law and Freedom of Association: Development through ILO supervision", bls. 187. Niðurstöður félagafrelsisnefndarinnar fara til stjómamefndar ILO sem samþykkir tilmæli til aðildarríkjanna í þeim málum þar sem félagafrelsisnefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að þau hafi brotið gegn ákvæðum samþykktanna. Skýrsla sérfræðinganefndar ILO fer til umfjöllunar á árlegu Alþjóðavinnumálaþingi stofnunarinnar þar sem nefnd um framkvæmd alþjóðasamþykkta og tilmæla fjallar um einstök mál. Skýrsla þeirrar nefndar er síðan afgreidd af allsherjarþingi Alþjóðavinnumálaþingsins. Niðurstöður eftirlitsaðila ILO eru ekki bindandi fyrir aðildarríkin, sbr. að samkvæmt 37. gr. stofnskrár ILO getur aðeins Alþjóðadómstóllinn (Intematio- nal Court of Justice) látið uppi bindandi túlkun um inntak skuldbindinga samkvæmt samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar ef ágreiningur er uppi um það efni. 288
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.