Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 10
8
Býð ég hina nýju kennara alla velkomna til starfa, og þakka
þeim, sem horfið hafa frá Háskólanum, fyrir störf þeirra.
IV.
1 starfsemi Háskólans umliðið háskólaár er það tvímæla-
laust markverðast, að Raunvísindastofnun Háskólans hefir nú
tekið til starfa. Byggingu fyrir stofnunina er að kalla fulllokið,
en þó skortir enn fé til búnaðar fyrir rannsóknarstofu í efna-
fræði og raunar sitthvað fleira. Eðlisfræðistofnun Háskólans
hefir nú tengzt Raunvísindastofnun, og er þar með lokið störf-
um hennar sem sjálfstæðrar stofnunar. Auk rannsóknarstofu í
eðlisfræði verða einnig starfræktar í Raunvisindastofnun rann-
sóknarstofur í efnafræði, stærðfræði og jarðeðlisfræði. Svo
sem kunnugt er, var það upphaf byggingarinnar, að Bandaríkja-
stjórn afhenti Háskólanum fé á hálfrar aldar afmæli hans í
október 1961 í því skyni að stuðla að framkvæmd að áætlun
Háskólans um eflingu raunvísindarannsókna. Að öðru leyti
hefir byggingin verið kostuð af ríkisfé og fé happdrættisins.
Framlag Bandaríkjastjórnar nam með vöxtum 6 milljónum
króna, fjárveitingar ríkisins hafa fram til þessa numið 6,4
milljónum og framlag happdrættisins 7,5 milljónum. Flyt ég
byggingarnefnd undir forystu prófessors Þorbjörns Sigurgeirs-
sonar þakkir fyrir mikilsmetin störf.
Sérfræðinganefnd starfaði s.l. vetur undir forystu forseta
verkfræðideildar prófessors Magnúsar Magnússonar að því að
semja reglugerð fyrir Raunvísindastofnun. Var mjög til þessa
verks vandað af hálfu nefndarinnar. Reglugerðin tók gildi nú
í sumar. Er prófessor Magnús Magnússon forstjóri stofnunar-
innar, prófessor Leifur Ásgeirsson forstöðumaður rannsóknar-
stofu í stærðfræði, prófessor Steingrímur Baldursson forstöðu-
maður rannsóknarstofu í efnafræði, prófessor Þorbjörn Sigur-
geirsson forstöðumaður rannsóknarstofu í eðlisfræði, og dr.
Þorsteinn Sæmundsson hefir verið settur forstöðumaður rann-
sóknarstofu í jarðeðlisfræði nú um sinn.
Miklar vonir eru tengdar við starfsemi Raunvísindastofmm-
ar. Er henni ætlað að fást við undirstöðurannsóknir á þeim