Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 47
45
Starfslið á skrifstofu.
Ungfrú Ásthildur Sigurðardóttir lét af starfi að eigin ósk
sumarið 1967, en við tóku frú Ásgerður Ágústsdóttir, frú Ásta
Benediktsdóttir og frú Jóhanna Bjarnadóttir.
Ályktun háskólaráðs um fjárveitingar til háskólabókasafns.
Á fundi háskólaráðs 1. júní 1967 var gerð sérstök ályktun
með hliðsjón af tillögum Háskólans um fjárveitingar til Há-
skólabókasafns. Segir í henni, að háskólaráð telji, að fjárveit-
ing þessi megi með engu móti vera lægri en til Landsbókasafns,
enda sé vísindalegt hlutverk Háskólabókasafns mikið og vax-
andi. Bent var á, að rannsóknarstofnanir Háskólans þurfi á
síauknum bókakosti að halda, og geri það að verkum, að safn-
inu sé oft og einatt nauðsyn að eiga tvö eða fleiri eintök af
sumum vísindaritanna, sem mörg séu dýr. Var ályktunin send
menntamálaráðherra og fjármálaráðherra.
Tónlistarnefnd.
1 henni áttu sæti dr. Jakob Benediktsson, dr. Róbert A. Ottós-
son og prófessor, dr. Steingrímur J. Þorsteinsson.
Happdrætti Háskólans.
Á fundi háskólaráðs 1. júní 1967 var gerð grein fyrir afkomu
happdrættisins s.l. ár. 1 stjórn þess voru endurkosnir: Ármann
Snævarr, rektor og prófessorarnir Halldór Halldórsson og Þórir
Kr. Þórðarson. Varamaður rektors var kjörinn próf. Ámi Vil-
hjálmsson. Endurskoðendur voru endurkjörnir prófessor Björn
Magnússon og Atli Hauksson, lögg. endurskoðandi.
Háskólahíó.
Á fundi háskólaráðs hinn 29. júní 1967 voru kynntir reikn-
ingar bíósins fyrir s.l. ár. Stjórn bíósins fyrir næsta ár var end-
urkosin, en hana skipa prófessorarnir Árni Vilhjálmsson, Krist-
inn Stefánsson og Ólafur Jóhannesson, svo og dr. Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra. Endurskoðendur voru endurkjörnir
prófessorarnir Ólafur Björnsson og Þórir Kr. Þórðarson.