Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 37
35
mennri menntun — sú menntun verður ekki fengin nema í tak-
mörkuðum mæli á háskólaárunum, þar sem sérmenntunin hlýt-
ur að sitja í fyrirrúmi. Vegna breyttra félagslegra viðhorfa í
þéttbýlinu og til að auka virkni í skólastarfi tel ég koma mjög
til greina að lengja skólaárið nokkuð, þótt ekki væri nema
fjórar vikur eða svo, og á það ekki síður við um Háskólann
en aðra skóla. Þá er ég þeirrar skoðunar, að 6 ára böm hér
í þéttbýlinu séu beinlínis andlega vannærð, og þurfi skólamenn
að gefa þeim meiri gaum en nú er gert. Tel ég hyggilegt,
að börn hefji skólagöngu 6 ára, og er sú skoðun bæði reist á
félagslegum og menntunarlegum sjónarmiðum, en það skólaár
ætti að vera með sérstökum hætti — öllu fremur undirbún-
ingur að skóla en skólaár.
Skólastarfið allt — og það á einnig við um Háskólann, þarf
að verða lífrænna en nú er, þar sem aukin áherzla verði lögð
á virka þátttöku skólanemenda í náminu þ. á m. í verklegri
kennslu með kennslutækjum, sem rutt hafa sér til rúms síð-
ustu áratugi. Skólaleiðinn margumræddi er táknrænn fyrir
það, að hér brestur nokkuð á. Sú fræðsla, sem fæst af bók-
um, er ekki einhlít, við verðum að taka í þjónustu skólanna
nýjustu tækni, sem höfðar svo mjög til ungs fólks, og örva
nemendur til tjáningar í ræðu og riti og virkari framlaga.
Islenzkukennslu þarf að auka og efla, og getur hún gegnt miklu
hlutverki í því sambandi, ef vel er á haldið. Forðast ber og
hinar leiðigjörnu endurtekningar á námsefni, svo sem þegar
lesgreinir eru kenndar svo, að sama námsefni er kennt tvisvar
eða þrisvar á skólaferli manna í mismunandi ítarlegu ágripi,
og gætir þess þó minna nú en oft áður. Höfuðáherzlu ber að
leggja á kennaramenntunina, bæði í Kennaraskólanum og hér
í Háskólanum, því að árangur skólastarfsins veltur vitaskuld
á því, hvernig kennararnir eru að menntun og áhuga. Kennara-
starf þarf að hefja til meiri virðingar en nú er í þessu þjóð-
félagi, störf að skólamálum eru ein hin mikilvægustu störf í
hverju þjóðfélagi, eins og nú er komið, og á því þarf að vera
fullur skilningur.
Að lokum langar mig til að rifja upp, að ég setti fram þá