Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 138
136
málefni norskra stúdenta, þeim Kristian Ottosen og Tönnes Andenæs,
og stofnaði Stúdentaráð til hringborðsráðstefnu með þeim, þar sem
fjallað var um haganlegasta skipan á félagsstofnunum stúdenta.
Rektor sat þennan fund, sem var mjög mikilvægur.
Hinn 23. jan. 1967 mætti rektor á Stúdentaráðsfundi, flutti ýtar-
lega ræðu um félagsaðstöðu stúdenta við skólann og studdi eindregið
tillögur S.H.Í. um endurskipulagningu þessara mála, enda var það
í beinu samráði við rektor, að teknar voru upp viðræður um þessi
mál á mun breiðari grundvelli en tillögur Stúdentaráðs um skipan
Garðstjórnar gerðu ráð fyrir.
í vetur voru samþykkt á Alþingi ný lög um námslán og náms-
styrki. Ráðið fjallaði oft um frumvarpið og var sammála um, að
með því væri stigið spor í rétta átt, þótt ekki sé fjárhagur lána-
sjóðsins nógu vel tryggður til að ná því marki um lánsfjárupphæð,
sem heimiluð er í lögunum. Fulltrúi S.H.Í. í hinni nýju stjórn Lána-
sjóðs var kosinn á síðasta fundi ráðsins Jóhann Heiðar Jóhannsson,
stud. med.
Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa starfað hjá ráðinu síðastliðið
ár: Unnur Jónsdóttir starfaði í eitt ár. Vésteinn Ólason, stud. mag.,
gegndi störfum framkvæmdastjóra í 2 mánuði í forföllum Unnar.
Síðan var Birgir Ásgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri.
Frá utanríkisnefnd S.H.l.
Stúdentaráð sendi fulltrúa á 9 alþjóðlegar stúdentaráðstefnur og
mót. Stefna Stúdentaráðs í utanríkismálum var óbreytt frá því, sem
verið hefur. Fulltrúar þessir sátu formannaráðstefnur landssambanda
stúdenta á Norðurlöndum. Stúdentaráð jók þátttöku sína í samstarfi
stúdentasamtaka Evrópu, er fulltrúar þess sátu þing stúdentasamtaka
Evrópu, European Meeting, í Zúrich í byrjun janúar. Ráðstefnur þess-
ar eru sóttar jafnt af fulltrúum Austur- og Vestur-Evrópu; markmið
þeirra er að efla gagnkvæman skilning á milli stúdenta úr ólíkum
þjóðfélögum. Utanferðir eru nánar raktar í Vettvangi Stúdentaráðs
í febrúar 1967.
Meginverkefni utanríkisnefndar er að fylgjast með því, sem gerist
í alþjóðlegri stúdentasamvinnu, en nefndm er Stúdentaráði til ráðu-
neytis um samskipti þess við erlenda aðila.
Samstarf við SÍSE í utanríkismálum hefur verið með svipuðum
hætti og síðustu ár. Félagsmenn SÍSE hafa tekið þátt í stúdentamót-
um erlendis fyrir hönd Stúdentaráðsins.