Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 12
10
undir þessa stofnun, sem fjallar um geysilega markvert rann-
sóknarefni. Til þessa rannsóknarverkefnis var stofnað að frum-
kvæði heimspekideildar á árinu 1943 og þá í fyrstu fyrir fjár-
framlög, er háskólaráð veitti úr Sáttmálasjóði. Síðar veitti
Alþingi fé til starfseminnar gegn jöfnu framlagi úr Sáttmála-
sjóði, en á síðustu árum hefir starfsemin verið kostuð nálega
eingöngu af ríkisfé.
Við orðabók starfa nú auk forstöðumanns, dr. Jakobs Bene-
diktssonar, þrír fastráðnir sérfræðingar. Prófessor Alexander
Jóhannesson var formaður orðabókarnefndar frá fyrstu tíð,
1946, og allt til andláts 1965. Formaður stjórnarnefndar Orða-
bókar Háskólans er nú prófessor Halldór Halldórsson, en aðr-
ir nefndarmenn prófessorarnir Einar Ól. Sveinsson og Hreinn
Benediktsson.
Þá hefir erfðafræðinefnd Háskólans fengið fastan grundvöll
fyrir tilstuðlan háskólaráðs. Er það verkefni þessarar nefndar
að veita forstöðu og skipuleggja rannsóknir á sviði erfðafræði.
Hér er merkilegu rannsóknarverkefni fyrir að fara, enda er
rannsóknaraðstaða í þessum greinum um margt einstæð á
landi hér. Prófessor Níels Dungal átti hugmyndina að þessum
rannsóknum hér við Háskólann, og útvegaði hann fjárstyrk
frá bandarísku kjarnorkumálanefndinni til þeirra. Hefir þegar
verið allmikið unnið að þeim og hefir fengizt fyrirheit um við-
bótarstyrk, sem gerir kleift að efla þessar rannsóknir.
Háskólaráð hefir nú sett reglur um þessa nefnd, sem vonandi
verður upphaf að háskólastofnun. Er formaður hennar Ólafur
Bjamason prófessor, en aðrir nefndarmenn prófessorarnir
Magnús Magnússon og Tómas Helgason, svo og dr. Sturla Frið-
riksson og ennfremur landlæknir eða fulltrúi hans og hagstofu-
stjóri eða fulltrúi hans. Eru miklar vonir bundnar við rann-
sóknarstörf á vegum þessarar nefndar.
Af öðrum málum vil ég nefna, að á s.l. sumri var haldið
þing blóðstreymisfræðinga í Háskólanum með þátttöku 70 sér-
fræðinga víðsvegar að úr heiminum. Þótti þessi ráðstefna tak-
ast vel, og var Háskólanum ánægja að geta liðsinnt forráða-
mönnum ráðstefnunnar um húsnæði og aðstöðu. Formaður