Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 43
41
Próf. Rolf Waaler, fyrrv. rektor Verzlunarháskóla Noregs,
flutti fyrirlestur í boði viðskiptadeildar 19. nóv. 1966. Nefndist
hann „Aktivisering og motivering: Bruk af okonomiske og
andre insiterende midler".
Sir John Bruce, prófessor í skurðlækningum við Háskólann
í Edinborg, flutti tvo fyrirlestra fyrir lækna og læknanema 6.
og 8. marz 1967. Fjallaði sá fyrri um krabbamein í brjósti, en
síðari um skurðaðgerðir vegna magasjúkdóma.
Prófessor Konstantin Reichardt frá Yale-háskóla flutti fyrir-
lestur í boði Háskólans 16. marz 1967. Nefndist hann „The Vin-
land Map, pro et contra“.
Próf. Torsten Lund frá Californíuháskóla flutti fyrirlestur
17. marz 1967 um uppeldi nútíma æsku.
Aage Norfeldt, fræðslustjóri á Friðriksbergi, flutti fyrir-
lestur í boði Háskólans hinn 3. apríl 1967. Nefndist hann „Op-
dragelse til menneske". Hann var boðinn hingað til lands af
stjórn Langvadssjóðs, og heimsótti hann allmarga skóla og
flutti þai’ erindi.
Prófessor Bjarni Jónsson frá Minnesotaháskóla flutti fyrir-
lestur í boði verkfræðideildar hinn 30. marz 1967. Fjallaði hann
um mengi með núll-máli.
Próf. Marco Scovazzi frá háskólanum í Milano flutti fyrir-
lestur í boði Háskólans 5. maí 1967. Nefndist hann „Island og
ltalía“.
Próf. Werner Winter frá Kielar-háskóla flutti fyrirlestur í
boði heimspekideildar 10. maí 1967. Nefndist hann „Tocharian
and Indo-European“.
Próf. J. F. Goodwin frá London flutti fyrirlestur í boði lækna-
deildar 8. júní 1967. Nefndist hann „Problems of Cardiomyo-
pathy“.
Próf. Cai’l Gustav Ahlström frá háskólanum í Lundi flutti
fyrirlestur í Háskólanum 13. júní. Nefndist hann „Virus och
cancer, den olösta gátan“. Sjóður til minningar um próf. Niels
P. Dungal stóð straum af heimsókn þessari.
Dr. John Dunham, forstjóri læknisfræðideildar rannsóknar-
ráðs Bandaríkjanna, flutti fyrirlestur í boði Háskólans 29. ágúst
6