Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 142
140
Formaður menntamálanefndar var Böðvar Guðmundsson, stud.
phil.
STARFSEMI STÚDENTAFÉLAGS HÁSKÓLA ÍSLANDS
1966—1967.
Jón Ögmiindur Þormóðgson, stud. jur., tók saman.
Stúdentafélag Háskóla íslands — SFHÍ — var endurskipulagt á
árinu 1966 og störf þess aukin til mikilla muna á þann hátt, að lagð-
ur var til félagsins hluti af störfum Stúdentaráðs Háskóla Islands —
SHl. Áður hafði félagið um langt skeið einungis séð um að gangast
fyrir rússagildi, þar sem nýstúdentum — rússum — var fagnað með
hefðbundnum hætti.
Kosningar til stjórnar félagsins fóru fram í fyrsta sinn eftir endur-
skipulagninguna 15. október 1966. Voru 2 listar í kjöri. TÓrslit urðu
þau, að A-listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, hlaut 345 at-
kvæði og 3 fulltrúa, en B-listi, borinn fram af 15 háskólastúdentum,
fylgjandi svokallaðri sjálfstæðri stúdentastefnu, hlaut 364 atkvæði
og 4 fulltrúa.
Stjórn félagsins skipuðu á starfsárinu Aðalsteinn Eiríksson, stud.
theol., formaður, Eggert Hauksson, stud. oecon., ritari, Hreinn Páls-
son, stud. jur., gjaldkeri, Júníus Kristinsson, stud. philol., varafor-
maður, Bogi Nílsson, stud. jur., vararitari, Davíð Gíslason, stud. med.,
varagjaldkeri, og Þórarinn Sveinsson, stud. med., meðstjórnandi.
Á fyrsta starfsári hins endurskipulagða stúdentafélags var að sjálf-
sögðu við nokkra byrjunarörðugleika að etja. M. a. átti stjórn félags-
ins ekki í neitt fast fundarherbergi að venda um veturinn. Þá var
félaginu ekki heimilað að halda í háskólanum fundi, er opnir væru
almenningi auk stúdenta, en valdboð þar að lútandi átti rætur sínar
að rekja til komu sænsku skáldkonunnar Söru Lidman til félagsins.
Verður nú greint frá starfi félagsins í stórum dráttum.
Aðalræðuna 1. desember flutti séra Þorgrímur Sigurðsson á Stað
á Ölduhrygg, og nefndist hún „Andlegt sjálfstæði“. Aðalræðumaður
á kvöldfagnaði var dr. Jakob Benediktsson. Stúdentablað 1. desember
kom út að venju. Meðal efnis má nefna greinina Andlegt sjálfstæði
eftir Sigurð A. Magnússon, rithöfund. Formaður hátíðanefndar 1. des-
ember var Sigurður Björnsson, stud. med., en ritstjóri hátíðablaðsins
var Ólafur Einarsson, stud. mag.
Fundanefnd gekkst fyrir umræðum um ýmis efni, er landsmenn
vörðuðu. Voru haldnir 9 fundir. Fyrir áramót flutti sænska skáld-
konan Sara Lidman fyrirlestur um Vietnam, en Stefán Jónsson,