Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 118
116
aldrei vék hann eitt um strik
út frá skyldu sinni.“
Þótt vinum Kristins Stefánssonar þyki kalt að standa yfir
moldum hans og svipminna að honum látnum, er þar þó engu
til að jafna við söknuð ættingja og venzlafólks, eiginkonu, dætra
og dótturbarna. Þau hjón Kristinn og Oddgerður voru mjög
samrýnd og einkar sýnt um að skapa náin tengsl meðal skyldu-
liðs þeirra. Það er og vafalaust satt, sem annars staðar segir
um prófessor Kristin látinn, að í fari hans var margt, sem
minnti á ættarhöfðingja í þess orðs bezta skilningi. Því er að
ættmönnum hans og fjölskyldu mjög sár harmur kveðinn.
Heiðruð sé minning hans.
Þorkell Jóhannesson.
X. HÁSKÓLABÓKASAFN
1967
Fríða Á. Sigurðardóttir gegndi nýju fulltrúastarfi (í 14.
launafl.) sem 3. fastur starfsmaður Hbs. frá maíbyrjun 1967,
en hafði unnið ritarastörf fyrir safnið næstu 7 mánuði á und-
an. Bókafé á fjárlögum hækkaði einnig, varð það ár 700 þús.
kr. Af ritauka safnsins á árinu vannst að innfæra 5300 bd.
Ráðizt var í að afla á næstu 2 árum einfalds eftirrits eftir
spjaldskrá mestalls erlenda hlutans af Landsbókasafni og hafa
þá skrá, aukna síðarmeir spjöldum bóka Hæstaréttar og e. t. v.
fleiri félagsvísindastofnana, til notkunar í lestrarsal í Háskóla-
bókasafni.
Óskir háskólans, sem ræddar höfðu verið nokkrum sinnum
við stjórnvöld síðan 1956 og nutu 1967 stuðnings menntamála-
ráðuneytisins, að notuð yrði heimild laga nr. 44/1949 um Lands-
bókasafn (7. gr.) til að staðsetja skráningarmiðstöð rannsókn-
arbókasafna (a. m. k. á helztu sviðum) í Hbs., náðu eigi fram
að ganga, er að því kom að tryggja á fjárlögum minnst 200