Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 28
26
háskólaráðsmönnum og öðrum samkennurum mínum ánægju-
lega samvinnu og fyrir það traust, er þeir sýndu mér í
vor með því að endurkjósa mig til rektorsstarfa. Ég þakka
ágætt samstarf við Stúdentaráð, stúdentafélög og stúdenta alla.
Ég sendi foreldrum og öðrum vandamönnum stúdenta hvar-
vetna á landi hér kveðjur Háskólans.
Megi háskólaárið, sem nú er hafið, verða ár friðar og far-
sældar. Gifta og heill fylgi háskóla vorum.
Ég óska yður öllum, er mál mitt heyrið, árs og friðar.
Að lokinni ræðu rektors lýsti forseti heimspekideildar, pró-
fessor HaJldór Halldórsson, því, að heimspekideild hefði með
samþykkt háskólaráðs sæmt prófessor, dr. phil. & litt. & jur.
Sigurð Nordal nafnbótinni doctor litterarum islandicarum.
Afhenti deildarforseti doktorsbréf, en dr. Sigurður Nordal
þakkaði. Fer ræða deildarforseta hér á eftir:
Herra forseti Islands, hæstvirtir ráðherrar, herra rektor,
aðrir samkomugestir.
Eins og tilkynnt var í dagblöðum og Ríkisútvarpi 14. sept-
ember í haust, veitti Heimspekideild Háskóla Islands með sam-
þykki háskólaráðs prófessor Sigurði Nordal lærdómsgráðuna
doctor litterarum islandicarum á áttræðisafmæli hans.
Heimspekideild getur veitt tvær doktorsgráður. önnur
þeirra er doctor philosophiae. Hana geta menn öðlazt að und-
angengnu prófi, sem að jafnaði er fólgið í samningu fræði-
legrar ritgerðar og opinberri vörn hennar. En hún er einnig
tíðum veitt í heiðurs skyni — eða honoris causa, eins og sagt
er á latínumáli eftir gamalli háskólahefð. Hin gráðan, doctor lit-
terarum islandicarum, er aðeins veitt í heiðurs skyni. Hennar
getur enginn aflað sér með doktorsprófi. Til þeirra, sem þá
gráðu hljóta, eru gerðar miklu strangari kröfur en Háskólinn
gerir við sin erfiðustu próf. Þessar þungu kröfur eru frábær
afrek á einhverju sviði íslenzkra fræða, og eru þá íslenzk fræði
tekin í víðustu merkingu þessara orða, eins og fyrri veitingar
þessarar gráðu sýna. Til hennar var stofnað árið 1918, og varð