Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 139
137
Utanríkisnefnd hefur rætt um, hvernig samstarfi við SÍSE á svið
utanríkismála verði bezt háttað í framtíðinni. Samþykkti nefndin að
bjóða SÍSE að senda áheymarfulltrúa á fundi nefndarinnar.
Norrœnar formannaráðstefnur.
Dagana 4.—6. maí var haldin norræn formannaráðstefna í Stokk-
hólmi. Meginviðfangsefni hennar var að marka sameiginlega stefnu
stúdentasamtaka Norðurlanda á 12. alþjóðaþingi ISC, en auk þess
voru rædd önnur sameiginleg vandamál á sviðum mennta- og hags-
munamála.
9.—11. nóvember 1966 var haldin norræn formannaráðstefna í
Reykjavík. Það mál, sem merkast verður að telja og rætt var á
þeirri ráðstefnu, er vafalaust, að Meginfélagi Föroyskra Studenta
var veitt viðurkenning sem sérstökum aðila að ráðstefnunni. Það er
samdóma álit allra, sem þátt tóku í ráðstefnunni, að hún hafi farið
vel fram og orðið Stúdentaráði til sóma.
Intemational Student Conference.
12. alþjóðaþing ISC var haldið í ágústmánuði 1966. Um störf þings-
ins og ályktanir má vísa til Stúdentablaðs.
Eins og kunnugt er, hefur Stúdentaráð gefið út alþjóðleg stúdenta-
skírteini International Student Conference. Grundvöllur þessarar
útgáfustarfsemi hefur hingað til verið næsta óljós. Að undanfömu
hefur verið unnið að samningsgerð milli framkvæmdastjórnar ISC
og Stúdentaráðs um útgáfu alþjóðlegra stúdentaskírteina og er henni
nú lokið. Samkvæmt samningnum öðlast Stúdentaráð einkarétt til
útgáfu alþjóðlegra stúdentaskírteina hér á landi.
Dagana 19.—25. marz 1967 gekkst ISC fyrir ráðstefnu um æðri
menntun í Evrópu. Jóhann Heiðar Jóhannsson, stud. med., sat þessa
ráðstefnu fyrir hönd Stúdentaráðs, en hún fór fram í Edinborg.
Formaður utanríkisnefndar var Björn Bjarnason, stud. jur.
Frá hagsmunanefnd S.H.I.
Nefndin hélt alls 22 bókfærða fundi á starfsárinu, en auk þess
nokkra óformlega fundi.
Stúdentaskiptasjóður.
Stúdentaskiptasjóður hefur eflzt að miklum mun, sérstaklega með
helmings hækkun á framlagi ríkisins. Hagsmunanefnd vann að samn-
ingu reglna um úthlutun úr sjóðnum.
»
18