Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 30
28
Jónas Hallgrímsson kveður svo í Magnúsarkviðu sinni:
„Þörf er og á djörfum
þegnum, er megni
sterkleg vinna stórvirki
strita samt með viti.“
Víst eruð þér, ungu stúdentar, djarflegir þegnar, sem íslenzk
þjóð væntir sér mikils af. Þjóð vor er ein hin fámennasta í
heimi. Af hverjum þegni hennar er ætlazt til meiri framlaga
til þjóðarheildar en af þegni nokkurrar annarrar þjóðar. Vér
erum sem stór fjölskylda. Vitundin um þessi sannindi hlýtur
að orka sterkt á oss. Vér verðum á æskuskeiði að einbeita oss
að því að búast sem bezt við störfum í þágu þjóðar vorrar.
Þegar út í lífið kemur, væntir þjóð vor þess, að hver þegn
vinni sterkleg stórvirki, eftir því sem hann er maður til. Þetta
er lífslögmál lítillar þjóðar, lífsnauðsyn hennar. Það er í raun
og sannleika mikil ábyrgð, sem fylgir því að vera Islendingur,
en jafnframt meir heillandi og ögrandi en að vera borinn þegn
stærri þjóða. Verkefnin eru óþrjótandi, og í nútímaþjóðfélagi
verða þau ekki leyst nema fyrir atbeina sérmenntaðs fólks,
sem hefir mannazt á heimsins hátt.
Þér standið nú á þröskuldi nýs skólastigs, og við tekur nám,
sem lýtur um margt öðrum lögmálum en það nám, er þér haf-
ið fengizt við undanfarin ár, bæði um námsefnið sjálft og ekki
síður vinnubrögð í námi. Hér er þörf að skoðast um og skyggn-
ast og gefa gaum að því, með hverjum hætti verði haganleg-
ast gripið á náminu. Margir eru fúsir til að kenna yður „vin-
samleg ráð og viti bundin" í þeim efnum. Sérstaklega eru
kennarar yðar þess albúnir að veita yður leiðsögn. Við upphaf
langs námsferils skyldi endinn skoða. Gerið yður glögga grein
fyrir námstilhögun í greinum yðar, aflið yður fljótlega góðs
bókakosts, bæði námsbóka og annarra rita, sem að gagni megi
verða í námi yðar, og færið yður í nyt aðstöðu á lestrarsöl-
um Háskólans og bókakost skólans. Gætið þess ávallt bæði í
námi og starfi að strita með viti.