Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 11
9
sviðum, sem nefnd voru, svo og á öðrum sviðum raunvísinda,
sem síðar kann að verða mælt fyrir um og fé er veitt til í
fjárlögum eða á annan hátt. Virðist t. d. vera eðlilegt að tengja
jarðvísindarannsóknir fljótlega við Raunvísindastofnun, þar
sem þær rannsóknir eru næsta tvístraðar nú, og raunar eru
mörg rök til þess að tengja saman á næstunni starfsemi Nátt-
úrufræðistofnunar og Raunvísindastofnunar. 1 því sambandi
má geta ályktunar háskólaráðs frá 7. október 1965, þar sem
háskólaráð lýsir því, að stefna beri að stofnun raimvísinda-
deildar eða vísindadeildar við Háskólann hið allra fyrsta, og
beri einnig í því sambandi m. a. að gefa gaum að þeim mögu-
leika að stofna til kennslu og rannsókna í landbúnaðarvísind-
um við Háskólann. Vísindadeild myndi þá væntanlega ná yfir
núverandi verkfræðideild, sem aukin yrði að starfssviði, svo
og náttúruvísindi, sem væntanlega yrðu í fyrstu aðeins kennd
til B.A.-prófa, og fljótlega ætti að bætast við kennsla í fiski-
fræði, fiskiðnaði og öðrum matvælaiðnaði og haffræði í tengsl-
um við náttúruvísindakennslu o. fl. Kannanir, sem fram hafa
farið í Háskólanum, benda ótvírætt til þess, að mikill hagur
væri að því að stofna til vísindadeildar hér við Háskólann.
Skapar sú deild svigrúm til að taka upp ýmsar nýjar greinir,
enda styður hver einstök grein mjög aðrar, svo sem auðvelt
er að sýna með dæmum. Hver háskóli nú á dögum hlýtur að
telja það meginmarkmið sitt að efla kennslu og rannsóknir
í raunvísindum, og er vonandi, að stofnun vísindadeildar hér
við Háskólann sé skammt undan.
Menntamálaráðherra hefir nú lýst yfir því með vísan til
9. gr. reglugerðar um Raunvísindastofnun Háskólans, að hún
sé tekin til starfa. Vil ég þakka öllum þeim, sem lagt hafa þar
hönd að verki og lagt byggingunni fjárhagslegt liðsinni. Er
mér og ofarlega í huga þökk til sérfræðinganefndarinnar, sem
hóf störf að ósk minni í ársbyrjun 1961 og samdi tillögur um
stofnunina og lagði fræðilegan grundvöll að henni.
Af öðrum málum vil ég nefna, að sett hefir verið reglugerð
fyrir Orðabók Háskólans, þar sem því er lýst, að orðabókin
sé föst háskólastofnun. Er mikilvægt að fá fastan grundvöll
2