Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 34
32
svo og um ráðunauta, er Háskólinn réði, til þess að veita stú-
dentum námsráð og fjalla um handleiðslu í námi, og kæmi
m. a. til greina að ráða eldri stúdenta til að fást við kennslu
og handleiðslu. Þá ræddi hann einnig um breytta kennsluhætti.
Hér fer á eftir kafli í ræðu rektors, sem fjallaði m. a. um
lækkun stúdentsaldurs:
Kandídatar, sem hverfa héðan frá Háskóianum í dag, standa
nú á hátindinum í íslenzku skólakerfi, og þeir eru skilfengin
afkvæmi skólastarfsins íslenzka. Við kennararnir hér í Háskól-
anum kynnumst um margt manna bezt íslenzku skólastarfi,
vegna þess að við veitum viðtöku stúdentum, sem gengið hafa
í gegnum öll skólastigin allt til Háskólans. Það er því að von-
um, að okkur verði oft hugsað til skólastarfsins og skólakerf-
isins, kosta þess og galla. Mig langar að benda hér á nokkur
atriði til íhugunar, en ég hlýt þar að einskorða mig við fáeina
þætti þessa mikla máls, og verð ég að stikla á stóru um hvern
þeirra um sig. Mér virðist fyrst og fremst eftir minni reynslu,
að stúdentarnir séu of gamlir, þegar þeir hefja nám hér við
Háskólann. Flestir þeirra eru þá tvítugir. Miðað við hið langa
nám hér í Háskólanum Ijúka flestir þeirra námi í grennd við
25 ára aldur, en sumir eru þó nokkru eldri. Mikill meirihluti
stúdenta — yfir 70% — eru giftir, er þeir ljúka námi. Að
loknu kandídatsnámi bíður sumra þeirra alllangt séfræðilegt
nám. Á það hefir oft verið bent, að hvorttveggja sé, að draga
megi í efa, hvort fámennt þjóðfélag hafi ráð á svo löngu námi
og einnig er hitt íhugunarefni, hvort það sé heppilegt fyrir
kandídatana sjálfa að vera svo gamlir, sem raun ber vitni, er
þeir taka til starfa í þjóðfélaginu við sérfræðileg verkefni.
Hér má og oft spyrja, hvort þörf sé á jafn löngu námi í háskóla
og nú er tíðkanlegt hér á landi, miðað við þau verkefni, sem
bíða mikils fjölda af kandídötum. Frá sjónarmiði Háskólans
koma hér og mjög til greina almenn menntunarleg viðhorf.
Nemendur hér á landi eru að mínu mati of lengi í bundnu námi
með takmörkuðum möguleika á kjörgreinum. Hið skólafars-
lega eða menntunarlega bil milli menntaskóianna og Háskólans er