Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 14
12
rætt um skráningarmiðstöð, og er gert ráð fyrir tilvist henn-
ar í Landsbókasafnslögunum frá 1949. Standa vonir til þess,
að þetta nauðsynjamál nái nú fram að ganga.
Háskólaráð óskaði eftir því við menntamálaráðherra á s.l.
vetri, að nefnd yrði skipuð til að fjalla um frambúðarskipun
á málefnum vísindalegra bókasafna hér á landi. Skipaði ráð-
herra nefndina, og hefir hún nú skilað tillögum til hans. 1
nefndinni áttu sæti Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri og þeir
dr. Björn Sigfússon og dr. Finnbogi Guðmundsson. Þetta er
málefni, sem Háskólinn telur hið mikilvægasta, og er höfuð-
þörf á að marka ákveðna stefnu um lausn þess til frambúðar.
1 Háskólanum starfar sérstök bókasafnsnefnd, sem skipuð er
einum fulltrúa frá hverri deild. Er formaður nefndarinnar pró-
fessor Magnús Már Lárusson.
1 september s.l. var að fullu skipuð nefnd til að semja áætlun
um eflingu Háskólans næstu 20 árin. Nefnd þessi er skipuð að
ósk háskólaráðs, svo sem lýst var á háskólahátíð í fyrra. For-
maður nefndarinnar er Jónas Haralz, forstjóri Efnahagsstofn-
unar, tilnefndur af menntamálaráðherra. Aðrir nefndarmenn
eru Pétur Benediktsson bankastjóri, er fjármálaráðherra nefndi
til, fimm prófessorar, er háskólaráð kaus, þeir Árni Vilhjálms-
son, Halldór Halldórsson, Magnús Magnússon, Tómas Helgason
og háskólarektor. Þá eiga sæti í nefndinni formenn mennta-
málanefnda Alþingis, þau frú Auður Auðuns og Benedikt Grön-
dal; formaður Bandalags háskólamanna, Sveinn verkfræðingur
Björnsson, og formaður Stúdentaráðs, Skúli Johnsen, stud.med.
Mikið verkefni bíður þessarar nefndar, en hlutverk hennar er
fyrst og fremst að semja tillögur og álitsgerðir um aukið
starfssvið Háskólans og byggingaframkvæmdir og gera grein
fyrir því fé, sem til Háskólans þarf næstu áratugina, miðað
við þá stórkostlegu eflingu Háskólans, sem í vændum hlýtur
að vera. Hér þarf fjölþættrar athugunar við, svo sem ég hefi
að nokkru rakið á háskólahátíðum undanfarin ár. Meðal ann-
ars hlýtur það að koma í hlut nefndarinnar að fjalla um rann-
sóknar- og kennslustofnanir, bætta aðbúð að kennurum og
stúdentum, eflingu á stjórnun Háskólans, félagsstofnanir stú-