Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 132
XV. ÝMISLEGT
AUGLÝSING nr. 1, 6. janúar 1967,
um staðfestingu forseta tslands á breytingu á reglugerð nr. 76/
1958 fyrir Háskóla íslands með áorðinni breytingu
samkvæmt reglugerð nr. 81/1965.
Forseti íslands féllst hinn 6. janúar 1967 á tillögu menntamála-
ráðherra um eftirfarandi breyting á reglugerð fyrir Háskóla íslands
nr. 76 frá 17. júní 1958 með áorðinni breytingu samkvæmt reglugerð
nr. 81 frá 2. september 1965:
1. gr.
Við d-lið 55. gr. bætist svofelld ákvæði:
Heimspekideild getur heimilað stúdent, er les til kandídats- eða
meistaraprófs í íslenzkum fræðum skv. 53. gr., I. lið reglugerðar nr.
76/1958 fyrir Háskóla íslands, að ljúka síðara hluta prófs í þremur
áföngum, einni prófgrein í hverjum, enda hljóti stúdentinn tilskilda
lágmarksmeðaleinkunn skv. 68. gr. í hverju áfangaprófi (en auk þess
1. einkunn úr öllum þremur áfangaprófum samanlögðum, skv. 58. gr.
I, B, 3. mgr., sé um meistarapróf að ræða).
Síðasti áfanginn skal ætíð vera próf í kjörsviðsgrein, og skal stú-
dent ljúka því í síðasta lagi á fjórða misseri, talið frá og með því
misseri, er hann gengur undir fyrsta áfangapróf. Ef út af bregður,
fellur hvort áfangaprófið (þ. e. próf fyrsta og annars áfanga) úr
gildi í lok fjórða misseris, talið frá og með því misseri, er stúdentinn
gekk undir það í fyrsta sinn.
Stúdent er heimilt að ljúka prófum fyrsta og annars áfanga, áður
en hann skilar kjörsviðsritgerð.
Á sama hátt getur deildin heimilað stúdent, er les til kandídats-
prófs í íslenzku með aukagrein skv. 53. gr. n, að ljúka síðara hluta
prófs í tveimur áföngum, og skal stúdent þá ljúka síðara áfanganum
(prófi í kjörsviðsgrein) í síðasta lagi á þriðja misseri frá og með
fyrra áfanga.
2. gr.
Reglugerðarbreyting þessi tekur þegar gildi.
í menntamálaráöuneytinu, 6. janúar 1967.